Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1956, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.12.1956, Blaðsíða 4
50 Sameiningin Prédikun flutt í Reykjavíkurdðmklrkju 12. ágúst 1956 „Hjarta ySar skelfist ekki, trúiS á GuS og trúiö á mig. í 'húsi fööur míns eru mörg híbýli, væri ekki svo mundi ég þá hafa sagt ySur, að ég færi burt aö búa yður staö ? Og þegar ég er farinn burt og hefi búiö yöur staö, kem ég aftur og mun taka yður til mín, til þess aö þér séuö og þar sem ég er . . . . Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífiö." —Jóh. 14:1—3 og 6. Kæru kristnu vinir: Skáldsaga ein, sem ég las nýlega, hefst með frásögu um mann, sem dvaldist nætursakir í húsi sem var rómað fyrir reimleika. Það varð að sönnu, um kvöldið er maðurinn var seztur að slokknuðu ljósin eitt eftir annað, án þess að eðlilegar orsakir kæmu til, að því er séð varð. Manninum leið mjög illa, hann þjáðist af einhverjum geig, sem hann fékk ekki með öllu gert sér grein fyrir. Lærisveinum Jesú var sennilega líkt farið um það bil er hann talaði til þeirra og sagði: „Hjarta yðar skelfist ekki." Heimur þessara manna var ekki mikið stærri en stofan, sem þeir sátu í, og ljósin höfðu verið að slokkna eitt eftir annað. Kristur hafði talað við þá leyndardómsfull og óskilj- anleg orð um burtför sína, og margt hafði borið við, sem skapaði þeim ugg og ótta. Allt virtist þeim vera á hverfanda hveli, og glórulaust myrkur fram undan. En með orðum textans dregur Kristur þetta myrka fortjald til hliðar, og sýnir lærisveinum sínum inn í annan bjartari og betri heim. Að efninu til segir hann þeim að þeir skuli vera rólegir og ekki láta bölsýni eða dapurlegar hugsanir þjá sig, öllu sé óhætt, því að lífið sé Guðleg náð, og dauðinn aðeins heimför til föðurins. En til þess að öðlast þessa lífsskoðun og geta tamið sér kristilega bjartsýni, telur hann að mönnum sé nauðsynlegt að þroska trúarlíf sitt, menn skuli trúa á Guð, föðurinn, hann sjálfan, Jesúm Krist, og á framhald lífsins út yfir gröf og dauða, á híbýlin mörgu í hásölum Drottins. Einhvers staðar rakst ég á þessa dæmisögu: — Dag nokkurn kallaði myrkrahöfðinginn alla helztu ráðgjafa sína saman og heimtaði af þeim að þeir legðu á ráðin um það hvernig stöðva skyldi kirkjugöngur manna, sem svo mjög

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.