Sameiningin - 01.12.1956, Side 9
Sameiningin
55
Fyrstu fjörutíu árin
(Úrdráttur úr fundarbókum lúterska safnatSarins í Blaine, Wash.)
Eftir MRS. J. J. STRAUMFJÖRÐ
Það er upphaf þessarar sögu að sunnudaginn 26. janúar
1913 var auglýstur fundur í I.O.F. samkomuhúsinu hér í
Blaine í þeim tilgangi að stofna hér lúterskan söfnuð. Séra
Hjörtur Leó, sem þá var staddur hér, og hafði dvalið hér um
tíma í þjónustu íslenzka lúterska kirkjufélagsins, var kosinn
fundarstjóri, en M. G. Johnson var tilnefndur skrifari. Mr.
H. Sigurdson gerði tillögu um að aukalög kirkjufélagsins,
sem snerta safnaðarmyndun innan vébanda félagsins skyldu
lesin; var þetta gjört og séra Hjörtur útskýrði hinar ýmsu
greinar, þar sem þess var óskað, og voru greinar þessar
síðan samþykktar.
Þá gerði Andrés Daníelsson tillögu um að stofna skyldi
lúterskan söfnuð hér í Blaine, Jóhann J. Straumfjörð studdi
tillöguna, og var hún samþykkt. Þorlákur Goodman lagði til
að söfnuðurinn skyldi nefndur Blaine lúterski söfnuður;
Jóhann Straumfjörð studdi þá tillögu og var hún samþykkt.
Því næst var kosin safnaðarnefnd og hlutu þessir kosningu:
S. J. Johnson, Sigmar Sigurðsson, M. M. Melsted, Bertha
Daníelsson og Fríða Sigurðsson. Þá var kosin djáknanefnd
og mynduðu hana þau: H. Sigurðsson, Magnús Grandy, J.
Olson, Mrs. Thorarinson og Mrs. Josephson.
Andrés Daníelsson mæltist til að safnaðarnefndin
grenslist eftir hvort söfnuðurinn á Point Roberts, og aðrir
söfnuðir á vesturströndinni, myndu vilja taka höndum
saman með Blaine söfnuði um að fá séra Hjört Leó til
prestsþjónustu.
Næsti fundur safnaðarins var haldinn 23. febrúar sama
ár. Var þá lagt fram bréf frá Point Roberts, þar sem sú ósk
var borin fram að allir söfnuðurnir á ströndinni gætu komið
sér saman um prestsþjónustu, og fjármál öll í því sambandi.
Var þá gerð tillaga um að senda séra Hirti Leó köllun til
prestsskapar, og var hún studd og samþykkt. Séra Hjörtur,
sem var viðstaddur á fundi þessum, óskaði eftir samvinnu
safnaðar og djáknanefndar um stofnun sunnudagaskóla, og