Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1956, Side 11

Sameiningin - 01.12.1956, Side 11
Sameiningin 57 keypt lóð fyrir væntanlega kirkjubyggingu fyrir $225.00, og fjársöfnunarnefndin teldi starf sitt ganga að óskum. Á safnaðarfundi 29. marz 1914 gerði byggingarnefndin þá yfirlýsingu að kirkjan yrði bráðlega samkomuhæf. Fram- kvæmdarstjórar smíðavinnunnar, þeir J. J. Straumfjörð og John T. Johnson, sögðu að vísu væri mikið verk enn óunnið við kirkjuna, en töldu að því mundi samt verða lokið innan skamms. Magnús Josephson, féhirðir, taldi að nauð- synlegt fé hefði náðst til byggingarinnar, að undanteknum $250.00; lagði hann til að söfnuðurinn fái $200.00 að láni frá lúterska kirkjufélaginu í Winnipeg, rentulaust. Var þetta ákveðið, og komst í framkvæmd. Safnaðarnefndinni var falið að sjá um að útvega sæti, orgel og lampa fyrir kirkjuna. Þá var ákveðið að tryggja bygginguna með $1000.00 elds- ábyrgð. Fyrsti september 1914 var minnisstæður dagur í sögu safnaðarins. Það var vígsludagur kirkjunnar. Athöfnina framkvæmdi séra Hjörtur, en séra Jónas A. Sigurðsson pré- dikaði. Einnig var séra Sigurður Ólafsson viðstaddur, og flutti hann stutt ávarp. Ennfremur voru þar staddir prestar meþódista og baptista í bænum og fluttu þeir kveðjur. Þessi athöfn var mjög fjölmenn. Skömmu síðar sgaði séra Hjörtur söfnuðinum upp þjón- ustu, en benti á séra Sigurð Ólafsson sem eftirmann sinn. Séra Hjörtur gat þess í kveðjuræðu sinni til safnaðarins, að hann hefði komið vestur í þeim tilgangi að stofna söfnuð og hjálpa til að byggja kirkju. Hvorttveggja væri nú komið í framkvæmd, og söfnuðurinn vel á vegi staddur fjárhags- lega. Hann gat þess að litlu skipti hvort hann væri eða færi, aðalatriðið er að þetta hús, sem við höfum reist hér Guði til dýrðar, stendur. Hann bað söfnuðinn að reynast séra Sigurði eins vel og hann hefði reynzt sér, og um fram allt að láta enga misklíð eða sundrung koma upp í starfinu, en standa allir saman sem einn maður, — þá mundi Drottinn leggja blessun sína yfir byggðina og söfnuðinn. Séra Sigurður var nú prestur okkar um hríð, en þjónaði einnig á Point Roberts, í Bellingham, Vancouver, Marietta, Crescent og Seattle. 26. janúar 1919 var nefnd kosin til að safna fé á ofangreindum stöðum í því skyni að kaupa bíl fyrir prestinn. Þetta mál fékk góðar undirtektir, og komu nú í sjóð $608.95, og $36.80 fyrir benzín. Var nú séra Sigurði

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.