Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.12.1956, Page 12

Sameiningin - 01.12.1956, Page 12
58 Sameiningin afhent gjöfin sem viðurkenning fyrir dygga og góða þjón- ustu. Þakkaði hann fyrir gjöfina með þeirri einlægni og hlýleika, sem jafnan hafa einkennt alla framkomu hans. Þessi gjöf kom sér mjög vel fyrir hann, því að hann hafði svo stórt starfssvið og mikil ferðalög. Séra Sigurður þjónaði í allt um 6 ár á þessu svæði. Á þessu tímabili varð hann íyrir þeirri stóru sorg að missa fyrri konu sína; var honum vottuð samúð safnaðarmanna í því tilefni. Hann tók síðan köllun frá Gimli og nágrenni og hvarf austur þangað. Var hans saknað hér af mörgum. Lengi vel átti söínuðurinn ekkert hljóðfæri. Fjögur mismunandi félög áttu orgel sín á milli, og gáfu þau hvert um sig kirkjunni sinn hluta. Þannig greiddist úr orgelmál- inu, og hefir hljóðfæri þetta verið notað til skamms tíma, eða allt fram að þeim tíma að núverandi orgel kirkjunnar var keypt. Jón Reykdal, formaður fjársöfnunarnefndar, gerði nú grein fyrir því að nefnd sinni hefði tekizt að safna nægu fé til að kaupa sæti í kirkjuna. Kostuðu bekkirnir tilbúnir $168.25, og' hafa þeir verið notaðir í kirkjunni fram á þennan dag. Var nefndinni síðan þakkað vel unnið starf. Um svipað leyti var rafleiðsla sett í kirkjuna, og gaf Thorlakur Goodman, og fleiri, Ijósatækin. Það næsta sem fyrir lá var að útvega altari í kirkjuna. Kvenfélagið „Líkn“, sem hafði verið stofnað 16. júlí 1916 hljóp þar undir bagga, keypti kvenfélagið altarið og lét setja það þangað sem það stendur nú, en altaristaflan og skírnarfonturinn er gjöf frá Mrs. Jóhönnu Johnson í Vancouver. Nú leið nokkur tími sem söfnuðurinn var prestsþjón- ustulaus. Á meðan svo stóð á höfðu djáknarnir biblíu-klassa og veittu sunnudagaskólanum forstöðu. Lét Mrs. María Benson einkum að sér kveða í þessum efnum, og reyndist hún söfnuðinum hin mesta hjálparhella. Um haustið 1923 (20. sept.) kom séra Halldór Johnson til Blaine sem prestur safnaðarins samkvæmt köllun hans. Var það fólki mikið gleðiefni að fastur prestur var nú aftur fenginn. Séra Halldór messaði einnig í Bellingham, Point Roberts, og í Seattle stöku sinnum. Hann kenndi sunnudaga- skóla og hafði biblíu-lesflokka, stundum á ensku. Ekki leið á löngu að einnig þessi prestur missti konu sína, og var

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.