Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1956, Síða 18

Sameiningin - 01.12.1956, Síða 18
64 Sameiningin drifinn og grimmúðlegur á öllum sviðum mannlegs lífs, að það er engu líkara en þessir áratugir aldarinnar séu sem steyttur hnefi framan í alla heimsmenninguna, sem að við vorum svo stoltir af. í ýmsum ríkjum hafa hræðilegar stofnanir verið skipulagðar til að stjórna fólkinu. Það eitt að nefna þær veldur kinnroða. Neyð þúsundanna í ánauð hrópar úr djúpinu . . . Eden-farganið og Egypfaland Oft er látið í veðri vaka að enska biskupakirkjan sé hlýðin og auðsveip ambátt ríkisvaldsins, og að rödd hennar, þegar hún annars lætur til sín heyra um almenn velferðar- mál eða þjóðmál, sé eins og bergmál af vilja ríkisstjórnar- innar. Út af þessu brá þó á dögunum í sambandi við árás Edens á Egyptaland. Þá lét kirkjan sterkari orð falla en nokkru sinni fyrr, allt frá dögum Búastríðsins, sem hún einnig fordæmdi. Fríkirkjurnar á Bretlandseyjum tóku einnig í sama strenginn, en kváðu sumar enn sterklegar að. Allar tóku þessar kirkjur undir ummæli erkibiskupsins frá Kantaraborg, en hann sagði að „samviskur kristinna manna eru mjög hrærðar og hryggar,“ út af þessum aðförum ríkis- stjórnarinnar. En eins og við var að búast, komu einnig fram nokkrar hjáróma raddir, einnig frá kirkjunnar mönn- um. Erkibiskupinn í York, sem stendur næst Kantaraborgar biskupi að tign og áliti, lét svo um mælt að það mætti „verja framkomu stjórnarinnar, ekki síður en framkomu andstöðu- flokka hennar, af kristilegri sannfæringu." Einn meiri háttar prófastur krossaði sig á brjóst og brá og stundi svo upp þessari samlíkingu: „Ef einhver náungi heldur áfram að klípa mig, sparka í mig og merja mig, ár eftir ár, er það þá nokkur furða þó að mér renni í skap, að ég snúi mér við og slái hann?“ Honum hugkvæmdist ekki að það væri kannske hægt að færa sig fjær þessari hvimleiðu hjásvæfu. Líklega fær þessi klerkur, og þeir sem líkt mæla, að komast inn í aldingarðinn hjá Eden. _______________•________________

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.