Sameiningin - 01.12.1956, Síða 19
Sameiningin
65
Sigurður Júiíus Jóhannesson
F. 9. jan. 1868 — D. 12. maí 1956
Kveðjumál 1‘lutt 15. maí 1956
Kæru kristnu vinir:
Vér eigum hér samfund
til þess að veita þessum
framliðna bróður, Sigurði
Júlíusi Jóhannessyni, þá
hina síðustu þjónustu, að
mæla yfir honum nokkur
kveðjuorð, og leggja síðan
lík hans í gröfina, hinzta
geymslustað dauðlegra
leyfa framliðinna, þar sem
þær verða að moldu. En vér
minnumst þess einnig, að
andinn fer til Guðs, sem
gaf hann. Ekki mun til þess
ætlast að vér dveljumst
lengi á þessum stað í dag.
Ekki gerist þess þá heldur
þörf að hér sé fjölyrt um
ævi og störf þessa manns.
íslendingum beggja megin
hafsins er sú saga löngu
kunn. En óviðeigandi myndi mörgum þykja það, ef vér
gengjum þegjandi héðan út í dag, án þess að þakka honum
fyrir samfylgdina og hin margvíslegu störf, sem hann hefir
leyst af hendi á meðal vor.
í einu bréfa sinna talar Páll postuli um „læknirinn
elskaða,“ og á hann þar við samverkamann sinn að boðun
fagnaðarerindisins, Lúkas, sem eins og kunnugt er, var
læknir að menntun. Ég hygg að það sé ekki ofmælt, að í
meðvitund fjölda manns, einkum hinna eldri íslendinga hér
í borginni, var dr. Sigurður „læknirinn elskaði." Um 30 ára
skeið gekk hann um götur og stræti þessarar borgar til að
líkna og lækna. Þegar kallið kom frá einhverjum sem þurfti
á þjónustu hans að halda, var aldrei að því spurt hvort