Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 21

Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 21
Sameiningin 67 Islandi og hér vestra; hann er svarinn fjandmaður Bakkusar, hann berst á móti hernaðarbrjálæði samtíðar sinnar, hann stuðlar að jafnaðarmennsku og kvenréttindum. Hann var oft einn úti á bersvæði með skoðanir sínar, og það næddu um hann kaldir stormar. En hann lét það alls ekki á sig fá, og sló hvergi undan. Hann var flugmælskur og svo tann- hvass, að mörgum þótti nóg um, hvort heldur hann flutti opinberar ræður eða hélt á penna. Hann var eldheitur um- bóta- og siðbótamaður. Hann skirrðist ekki við að leggja atvinnu sína og fjárhagslegar framtíðarhorfur á fórnar- stallinn, ef því var að skipta. Vafalaust verður lengi um það deilt hvort skoðanir hans og stefnur hafi verið heppilegar á hverjum tíma, og hvort hann hafi beitt nægilegri dóm- greind og gagnrýni í þeim málum, sem hann tók að sér. En hitt duldist engum, að hér fór göfuglyndur maður og velviljaður hugsjónamaður. Ekki taldi hann sig mikinn trú- mann á kirkjulega eða kristilega vísu. En það sem hann GERÐI hrópaði svo hátt, að það var örðugt að heyra hvað hann SAGÐI í þeim efnum. Bæði skáldskapur hans og mann- kærleiksverk bera trúarkennd hans ákveðið og öflugt vitni. Eða hvar er hægt að finna fegurri trúarjátningu en þessa: „Ef ég gæti gleðirós grætt á lífsins hjarni, eða tendrað lítið ljós að lýsa viltu barni. — Eða vakið öðrum hjá ást til bræðra sinna, kjarna hlotið hef ég þá hjartans óska minna.“ En Sigurður var fyrst og síðast læknir. Hann var læknir að upplagi, að menntun og ævistarfi. Er ég staðhæfi að hann var læknir að upplagi á ég við það að hann þráði að lækna mannlífsmeinin, ekki síður en mein einstakra manna. Hann langaði til að hleypa út úr kýlum, og græða fúasár á líkama mannfélagsins. Eins og oft vill verða með hugsjóna- menn, urðu það honum sár vonbrigði, er hann varð þess vísari að menn kusu miklu heldur að halda áfram að ganga með þessi kaun, en að láta hrófla við þeim. Hann langaði til að framkvæma kraftaverk, en varð það brátt ljóst að sam-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.