Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 25
Sameiningin
71
Dr Theol. Sigurgeir Sigurðsson
biskup
Biskupinn dáinn; brostið göfugt hjarta,
boðskapur harmsár íslands þjóð er fluttur.
Hylur nú moldin höfðingssvipinn bjarta.
Haustið er komið, sumartíminn stuttur.
Frosthríðin blómin föl að grundu lagði:
fegursta stórtréð hné á augabragði.
Biskupinn hniginn, horfinn burt frá starfi
hann sem í verki bar af flestum mönnum.
Skilað nú hefur ævidagsins arfi
íslenzkri þjóð svo verði að notum sönnum.
Dáðríku starfi alla tíð hann unni,
unna sér hvíldar fram að dauða’ ei kunni.
Biskupinn látinn. Hnípin heilög móðir,
höfðingjann góða syrgir íslands kirkja.
Prestum og leikum var sem vænsti bróðir,
víngarð sjálfs Drottins snemma tók að yrkja.
Upplyftum höndum blessa, vígja, biðja —
biskupsins fyrsta og síðasta var iðja.
Biskupinn lifir. Lifir sál hjá Drottni.
Lifandi Kristur frelsar þá, sem trúa.
Orðin hans lifa eins þó jarðlíf þrotni,
áminning helgri til vor jafnan snúa.
„íslenzka þjóð, þigg eilíft náðarborðið.
íslenzka kirkja, boða lífsins orðið.“
—Magnús Guðmundsson
_______________•_______________
Beiur má, ef duga skal
Fyrir nokkru síðan var öllum lesendum „Sam.“ skrifað
og skýrt frá fjárhagsástæðum blaðsins, og þeir beðnir að
hlaupa undir bagga. Margir hafa brugðist vel við, og sent
blaðinu peninga. En betur má, ef duga skal. Það er blátt
áfram fjarstæða að reyna að gefa út ársfjórðungsrit fyrir
einn dollar með núverandi peningagildi og verðlagi. Þökk
sé þeim, sem þegar hafa hjálpað þeessu gamla, góða blaði.
En eru ekki fleiri sem vilja greiða atkvæði með framtíð þess?