Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1957, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.12.1957, Qupperneq 11
Sameiningin 9 Þegar um öxl er litsð Það er margt sem skýrist í huga manns, þegar litið er í næði yfir liðna tíð. Meðan maður stendur mitt í önnum dagsins er lítill tími til athugana, því að margþætt störf kalla þá stöðugt að. Þannig hefir það verið fyrir mér um hjáliðin 42 ár, er ég hefi verið þjónandi sóknarprestur. Við það að hætta fastastörfum og hafa nægan tíma til athugana, sækja ýmsar minningar að huga mínum. Eitt slíkt smáatriði, er átti sér stað í byrjun starfsferils míns, enda áður en ég fékk prestsvígslu, hefi ég að gamni mínu fest á þessi blöð- Það var sumarið 1914 að ég hóf starf mitt á Kyrrahafs- strönd undir umsjón séra Hjartar J. Leo. Um haustið varð það að ráði að hann færi til Winnipeg og yrði kennari við Jóns Bjarnasonar skóla. Með samþykki safnaðanna íslenzku á Kyrrahafsströnd (Blaine og Pt. Roberts í Washington-ríki og Vancouver-safnaðar í B.C.), og samkvæmt ráðstöfun Kirkjufélagsins, tók ég við prestsþjónustu í söfnuðunum við burtför hans; en auk þess átti ég að vera umferðaprestur Kirkjufélagsins í Washington-ríki og í British Columbia. Árla í október-mánuði hóf ég fermingar-undirbúning ungmenna í Þrenningar-söfnuði á Pt. Roberts. Þar höfðu ís- lendingar búið síðan 1893, en það ár höfðu þeir flestir komið þangað frá Victoria, B.C. Síðan hafði byggðin aukizt þar, en aldrei hafði ferming ungmenna verið framkvæmd þar, enda mjög lítil prestsþjónusta þar framan af árum; aðallega frá aldamótum, af hálfu séra Jónasar A. Sigurðssonar, er þá var búsettur þar. Það voru 8 ungmenni, sem í ráði var að fermd yrðu vorið 1915. Sum þeirra voru fullþroska og ein gift kona var 1 hópnum, Mrs. Gróa Sæmundsson, kona Kolbeins Sæmunds- sonar, síðar prests í Seattle, og enn þjónandi þar við ágætan orðstír. Hún var ein af fjórum börnum hjónanna Helga Thorsteinssonar og Dagbjartar Dagbjartsdóttur konu hans. Læt ég nöfn og aldur þessara ungmenna fylgja þessum línum:

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.