Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1958, Page 3

Sameiningin - 01.03.1958, Page 3
Sameiningin A quarterly, in support of Church and Christianity amongst Icélarid’ers' Piiblishéd by THE B'VANGEIjICAL LUTHEEAN SYNOD OP NÖRTH AMERICA Authorized as Second Class Mall, Post Office Department, Ottatva Editor: DR. V. J. EYLA.NDS 68G Banning- St., Winnipeg 10, Manitoba, Canada Treasurer: MRS. B. S. BENSON, 757 Home St., Winnipeg 3, Manitoba Stormar lífsins (Brot úr ræðu) Vér sem nú erum fullorðnir höfum allir verið í eða heyrt að minnsta kosti drunur hins mesta stórviðris, sem frá alda öðli hefir gengið yfir veröldina. Síðan því linti eru liðin einungis tólf ár. Á því litla augnabliki tímans hefir komið í ljós, hve kynjamargt hins fúna og feiskna hefir sópast burt í því voðalega óveðri. En meðan nokkuð er eftir fúið og spillt í heiminum, koma stormar, þeir koma ugglaust margir enn í einhverri mynd. Og þótt stormar þeir séu illir, sprottnir af synd og ranglæti vor mannanna, og þeir séu oss en eigi Guði að kenna, þá er Guð þó í storminum, að því leyti, að hann notar storminn, sem rís upp af ranglæti sjálfra vor, til þess að hreinsa og bæta andrúmsloftið í mannheiminum. Og um líf vort einstaklinganna verður það ávallt að segja, að stormar reynslunnar eru oss gefnir af guðlegri náð, að þeir séu oss hér í lífi sem heilagir hreinsunareldar, er brenni sorann úr manngildi voru og umskapi oss til myndar- innar fögru af frelsara vorum Jesú Kristi. Fyrir stormviðrin hafa öll beztu hlutskiptin fallið þjóð- unum í skaut. Allt sem gott er, er dýrt. Lífið býður aldrei kjörkaup. Við veg þann, sem mannkynið hefir komið upp hlíðarnar neðan úr dalnum, er blóð í hverju spori. Sérhvert spor, sem mannkynið hefir stigið í framfaraáttina, hefir það stigið yfir fallnar hetjur, sem fórnuðu sér. Guð hefir brunað fram í fellibyljum og stormviðrum mannkynssögunnar- Svo er með fellibylinn síðasta og mesta, sem sögur fara af. Þegar fram líða stundir skal það sannast, að Guð var í stormviðri styrjaldarinnar miklu. Skýin, sem enn eru, eftir

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.