Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1958, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.03.1958, Blaðsíða 11
.Sameiningin . 9 þögul undiralda hinna fjölmörgu, er áttu þeim gott upp að unna og telja það gæfu að hafa orðið á vegi þeirra. Ég bar gæfu til þess að géta verið nokkra daga með þeim Jóni og Kirstínu í juní 1957- Sjúkdómsstríð hans var þá byrjað fyrir nokkru, þó í bili væri vægðarfullt hlé. Hann vissi vel að hverju stefndi og átti í því sambandi fuilkomna ró. Orð hans við Ásmund biskup Guðmundsson, er hann léit inn til hans á spítala í Cavalier nokkru seinna, lýsa hugarástandi hans mæta vel: ,,Ég er hættulega veikur, en mér líður vel.“ Undir niðri var djúpur friður. Hinn ungi lífsglaði drengur átti langa sögu. Ýmsir þættir fléttuðust inn í og viðhorf lífsins tók breytingum. Þekking á lífinu og kjörum þess færði honum sífellt dýpri samhyggð með öllu er beygir mennina. Honum var ómögu- legt að einangra sig frá því sem hvíldi á öðrum. Stundum þjakaði það svo að honum í bili, að það skyggði á þá björtu lífsgleði, er átti djúpar rætur í fari hans, en undir niðri lýsti af lífsskoðun, sem ekki lét bugast. Fyrir honum var dauðinn aðeins viðburður í lífinu og framundan björt lífsvon hinnar kristnu trúar. Vel er mér ljóst, að ég er að minnast bróður og að til- finningar mínar líta allt viðhorfið ljósum bjarma. En sam- hliða því veit ég að kærleikur og velvild þurfa ekki að skyggja á rétt mat á lífi annara, heldur geta verið lykill að því að geta metið og notið hins bezta og verðmætasta í fari þeirra. í þeim anda minnist ég bróður míns og þess er hann var mér í gegnum lífið- Ég hefi alltaf átt þá tilfinningu að heimili Jóns og Kirstínar væri mér heimahagar. Þar hafa ætíð staðið opnar dyr hlýleiks og kærleika. Að koma til þeirra var að koma heim til æskustöðva og alls sem gerir lífið dýrmætt og unaðslegt. Það er gott að hugsa um það heimili nú í höndum Magnúsar sonar þeirra og hans ágætu konu, Lois. K. K. Ólafsson

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.