Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1958, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.03.1958, Blaðsíða 16
14 Sameiningin 99% ítala eru taldir rómversk-kaþólskir, en mörgum þeirra finnst nóg um aðgerðir þessarar kirkjudeildar í al- mennum landsmálum. Þessi deila um guðslög og landslög er gamalkunnug þeim er lesið hafa sögu Islands á miðöldum, einkum af Staðamálum, svonefndum, og deilum Árna biskups Þorláks- sonar við konungsvaldið. Á alþingi árið 1253 var það sam- þykkt, að þar sem guðslög og landslög greini á, skuli guðslög ráða. Var það mjög í anda kaþólsku kirkjunnar, sem um það bil, og lengi síðan, réð lögum og lofum á íslandi. En það er löngu liðin saga, sem betur fer, að því er snertir þjóð vora. ☆ ☆ ☆ Niemöller íapar fylgi Dr. Martin Niemöller, fyrrum kafbátsforingi úr keisara- liðinu þýzka, varð heimskunnur maður í síðara heimsstríð- inu fyrir að standa uppi í hárinu á Hitler, en einkum þó fyrir það að þola 10 ára fangelsisvist fyrir dirfsku sína. Var hann um skeið eins konar þjóðhetja hjá Þjóðverjum, og í miklu álitli víða um lönd. Nú í seinni tíð hefir hann tapað almenningsfylgi vegna tillátssemi sinnar við Rússa. Hann er, að sögn, í mklu afhaldi austan járntjalds, en í Vestur- Þýzkalandi hefir hann lítil áhrif. Nýlega náði hann kosningu, með eins atkvæðis mun, sem forstöðumaður kirkjunnar í héruðunum Hesse og Nasseau. ☆ ☆ ☆ Eru Uniiarar krisfnir? Sjálfsagt fer svarið við þeirri spurningu mjög eftir því hvernig menn skilgreina hugtakið „kristinn“ maður. Aftur og aftur hefir þessi spurning verið borin fram af þeim sem ekki eru meðlimir þessa félagsskapar; þannig, eða á þá leið fórust séra Ralph Stutzman, presti All Souls Unitarian kirkjunnar í Washington, D.C., orð nýlega í ræðu, samkvæmt blaðafregnum, sem hafa vakið töluverða athygli víðsvegar: „Satt er það,“ er haft eftir presti þessum, „að vér unitarar eigum uppruna okkar í hinni kristilegu menningu, eða í arf- leifð kirkjunnar. En ég hygg, að nú sé tími til þess kominn að horfast í augu við þá staðreynd að vér höfum vaxið upp úr þessu,“ (that we have come out). Síðan lýsti Stutzman prestur

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.