Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 8
164
'S A M E I N I N O I N
Það var á sunnudegi
árið 1940, suður í
Louisville í Ken-
tucky, að verzlunarmaður þar í borginni fór til kirkju. Venju-
lega þykir slíkt ekki sæta stórtíðindum, en þessi kirkjuför
hafði þó afleiðingar, sem eftirtekt hafa vakið all-víða hér
í landi.
Maðurinn hét George Stoll. Hann heyrði þrumandi ræðu
hjá presti, verkahvöt til leikmanna: nú þyrftu þeir, sagði
hann að hefjast handa, sýna dug ai sér; gjöra brautir guðs-
ríkis beinar í gegnum syndaöræfi þessa heims. Ræðan var
líklega eins og oft kemur fyrir, auðug að áeggjan en fátæk
að ráðum. Stoll kaupmaður fór hugsandi frá lestri þeim. Og
hálf-gramur. Svona væru þessir prestar, hugsaði hann, alltaf
að hvetja menn til umbóta, en sögðu aldrei hvar eða hvernig
vinna skyldi.
En þá var eins og sagt væri við hann: “Hefir þú ekki
verksvit? Þegar þú vinnur í sjálfs þíns hag, þá þarf ekki að
segja þér fyrir verkum; þú finnur tækifærin og hugsar upp
aðferðirnar sjálfur. Getur þú ekki verið eins framtakssamur
í þarfir guðs ríkis?’
Stoll sá undir eins að þetta var alveg rétt. Alt í kringum
hann voru tækifærin. Hann þurfti ekki annað en að litast
um, velja sér verkefni og taka til starfs.
Ekki stóð á tækifærinu. Almennar stofnanir ýmsar í Lou-
isville og víðar um ríkið, höfðu ekki sem best orð á sér,
fangelsi, barnaheimili, betrunarhús, heilbrigðisstofnanir,
geðveikrahæli og fleiri slíkar. Á því sviði var nóg að starfa.
En auðvitað gat hann litlu til leiðar komið einn síns liðs;
hann þurfti að fá hóp manna í lið með sér. Tókst honum
að ná saman hér um bil tvö hundruð leikmönnum úr ýms-
um kirkjudeildum í borginni. Þeir bundu félag með sér,
kölluðu flokkinn “Stofnana-nefnd kirknaráðsins í Louisville”
og tókust á hendur að bæta ástandið í stofnunum ríkisins.
Að þeim umbótum hafa þeir unnið síðan, og tekist mæta
vel; hafa nú komið ákaflega mörgu í lag á því sviði, bæði í
borginni Louisville og um gjörvalt ríkið. Félagið forðast þær
aðferðir margar, sem umbótamenn fylgja venjulega; fer
ekki með hávaða; sneiðir hjá flokka-pólitík; hleypur ekki í
Tvö hundruð menn
í Louisville
Eftir séra G. Guttormsson