Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 9

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 9
S A M K 1 N 1 N U 1 N 165 blöðin með sakargiftir og heimtar ekki að forstöðumenn verði settir frá eða starfsfólk rekið úr vinnu, þótt eitthvað hafi farið aflaga. Fer heldur með vinsemd að þeim sem eiga í hlut; reynir að ná trausti þeirra; býður þeim aðstoð. Þessi aðferðin hefir langoftast komið að góðum notum. Hlutaðeig- endum hafa venjulega tekið þeim félögum vel, greitt fyrir þeim og gjört sér far um að koma ráðum þeirra í framkvæmd. Og þær umbætur sem gjörðar eru þakka félagsmenn sjálfum sér sem allra minst, en gefa heiðurinn forstöðumönnum og vinnufólki í hverri stofnun. Umbætur allar verða tryggari, ef gjörðar eru með góðum hug. Ágætt dæmi um aðferðir þessa félags er tilhreinsun sú, sem gjöðr var í fangelsinu í Jefferson County. Flestum var meira og minna kunnugt um ástandið í þeim gamla hjalli, en enginn hafði tekið sér fram um að ráða bót á þeim ólestri. Loksins bauð fangavörður félaginu að láta nefnd úr sín- um hópi, gista þar næturlangt. Boðið var þegið. Nefndar- menn voru til skiftis, tveir og tveir á verði í fangelsinu frá miðnætti á laugardag til mánudagsmorguns, og gáðu vel að öllu sem fram fór. Ástandið var hörmulegt; húsakynnin ill og óheilnæm og aðbúð öll eftir því; óknyttir alls konar höfðu viðgengist þar um langan aldur mótstöðulítið; en viðleitni sama sem eng- in í þá átt að veita föngunum viðreisn eða vísa þeim til betri vegar. — Nefndin leitaði ráða hjá sérfræðingum, sem boðið höfðu hjálp; lagði svo fram all-margar tillögur til umbóta; var síðan röggsamlega hreinsað til í þessum forna dvalarstað. Vera má að fleira en athafnir félagsins hafi komið þar til greina; en eftir að nefndarmenn hófu rannsókn sína, komu ný rúmstæði og nýjar sængur í hvern klefa; fangelsið fékk góðan forða af nýjum bókum og tímaritum; föng voru gefin á íþróttum og nokkurri skemtun, og vistmönnum séð fyrir þokkalegum fatnaði og hjálpað til að ná í atvinnu, þegar þeir hlutu lausn. Nefndin er nú að gangast fyrir því, að stofnuð verði fanga- vist úti á landi og látin koma í staðinn fyrir gamlan “leti- garð”. Hún hefir útvegað ríkisfangelsinu nýjan fangaprest, séræfðan til þess verks og óháðan allri klíkupólitík. í æskulýðsmálum hefir félagið aðra nefnd að verki. Hún kynti sér verstu “glæpasvæðin” á borgaruppdrætti lögregl- unnar og sá að eitt svæðið var allra verst. Það var tíu “blokk-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.