Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 11
Sambininqin 167 vinna umbótastarfið í þeim anda. Ennfremur að sækja vel fundi félagsins og gefa sig sérstaklega við einhverju vissu verkefni. Aðalmarkmið félagsins, segir George Stoll, er ekki það að koma til leiðar þessum umbótum, svo nauðsynlegar sem þær eru, heldur hitt að veita leikmönnum hvöt og leiðarvísi til kristilegrar samvinnu. Hann telur kirkjunni vel fært með sameinuðum kröftum að vinna margt stórvirkið, sem þær geti með naumindum fengist við, eða þá alls ekki, hver í sínu lagi. Margir leikmenn taka fegins hendi við slíkum stórmálum, segir hann — málum, sem liggja út yfir flokka- bönd öll og skilrúm í sýnilegri kirkju, en hafa gjörvalla kristni Guðs að verksviði. Ekki verður annað sagt, en að þeir tvö hundruð félagar í Louisville hafi rekið góðan botn í ræðu prestsins, þá sem áður var um getið. Hann átti líklega upptökin, eða lagði fram sterka hvatningu að minnsta kosti. En þeir önnuðust ráð og framkvædir. G. G. Úr Imilaiion of Chrisi efiir Thomas á Kempis. Þegar maður á samleið með Kristi gengur alt að óskum, og ekkert er torvelt, en án hans er alt bundið örðugleikum. Þegar rödd hans nær ekki til hjartans, hafa önnur hugg- unarorð lítið gildi. Eitt orð af vörum Krists flytur mikla huggun. Stóð ekki María Magdalena upp tafarlaust í sorg sinni, þegar Marta systir hennar sagði við hana: “Meistarinn er hér og vill finna þig”. Það er mikil og fagnaðarrík stund þegar Kristur kallar menn frá ofurþunga sorgarinnar til andlegs fagnaðar. Hve hart og strembið er hugarfar þitt án hans. Það er fá- vísi og hégómlegheit að girnast nokkuð annað en Krist. Er það ekki skaðlegra en þótt maður missi allan heiminn? Hvaða arð fær veröldin flutt þér án hans? Án Krists er lífið þungbært fordæmingar ástand; í sam- fylgd með honum er lífið fagnaðarríkt sælu-ásigkomulag. Dagleg umgengni með Kristi Pýtt af séra S. S. Christophersyni

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.