Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 10

Sameiningin - 01.11.1947, Blaðsíða 10
166 Sameiningin ir” á hvern veg, en þaðan höfðu komið lang-flestir af ungl- ingum þeim, sem sekir urðu um lagabrot í borginni. Hjálp- ræðisherinn hafði haft þar samkomustað fyrir unglinga, en orðið að hætta við sakir fjárskorts. Börnin höfðu þar ekkert leiksvæði nema strætin. Nefndin tók til starfa í þessu borgar- hverfi. Skóla nokkurn, lítið notaðan, fékk hún leigðan af söfnuði þar í grend, fyrir dollar á ári. Hún gjörði húsið not- hæft, safnaði tækjum til leiks og íþrótta, en Hjálpræðisher- inn fékk mann til umsjónar. Drengjaflokkur með yfir fimm hundruð meðlimum var bráðlega tekinn til starfa í þessu nágrenni, en barnaglæpir tókust af á þeim slóðum hér um bil algjörlega. í átta mánuði og betur til hefir nú enginn pilt- ur þaðan verið kærður um lagabrot. Félagið hefir nú tólf nefndir starfandi. Ein þeirra fæst við heilbrigðismál. Hún gengst meðal annars fyrir nýrri og betri meðferð á geðveiku fólki, sem nú er í vitfirringastofnun rík- isins; mælir með nánari athugun þeirra sjúklinga og heldur því fram að einn fjórði hluti þess fólks sem sent er á vit- firringahæli, ætti miklu heldur að vera sent á heilsuhæli eða sjúkrahús. — Önnur nefnd annast fólk á gamalmannaheimilum, sér vist- mönnum fyrir sunnudagaskólakennslu og söngskemtunum; veitir þeim fréttablöð og bækur; hugar eftir ástæðum fyrir aðsókn gamals fólks að þessum heimilum. Aðrar nefndir safna blöðum, bókum og tímaritum fyrir ýmsar ríkisstofn- anir; gangast fyrir viðreisn manna sem leystir hafa verið úr fangelsi; vinna að umbótum á kviðdómakerfi ríkisins; og ýms önnur járn hafa þeir félagar í eldinum. Auk þessara sérstöku umbóta hefir félagið komið tvennu til leiðar sem mikilvægt er. Það hefir fengið leikmönnum kristileg efni til meðferðar og sýnt þeim vegi til framkvæmd- anna, og í öðru lagi aukið samhug og samvinnu meðal fólks úr ýmsum kirkjudeildum. Hvorttveggja mætir djúpri þörf í kristni vorra tíma. Skilyrði fyrir inngöngu í þennan félagsskap eru ekki sér- lega ströng eða margbrotin. Liðsmenn undirgangast að biðja fyrir komu guðs ríkis tíu sinnum á dag; að hugsa daglega um ráð og framkvæmdir í þeim efnum og lesa biblíukafla þar að lútandi; að bera umhyggju fyrir vistfólki á stofnun- um ríkisins eins og það væru systkini sjálfra þeirra; að sýna starfsfólki og embættismönnum þeirra stofnana fulla samúð og nærgætni, minnast erfiðleikanna sem þar liggja fyrir og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.