Sameiningin - 01.11.1947, Síða 12
168
Sameiningin
Ef Kristur er með þér, fær enginn óvinur unnið þér mein.
Sá, sem finnur Krist, finnur mikla gersemi, besta allra
annara gæða.
Sá, sem fyrirgerir rétti sínum til Krists, fer á mis við
það, sem er meira vert en heimur allur.
Sá er fátækastur sem lifir án Krists, en ríkastur er sá, sem
á hann að vin.
Það þarf mikla kunnáttu til að geta átt samræðu við
Krist, og að geta átt samleið með honum útheimtir mikinn
vísdóm.
Gakktu fram í auðmýkt og rósemi, og þá mun Kristur
vera með þér.
Vertu einlægur og friðelskandi, þá mun Kristur fylgja þér.
Vel má svo fara, að þú missir af kærleika hans og sam-
fylgd, ef þú snýrð af vegi hans til að leita tímanlegra hags-
muna.
Ef þú hrindir honum frá þér, hvert er þá að flýja, og hver
á þá að vera vinur þinn í hans stað?
Þú megnar ekki að lifa vinarlausu lífi; ef Kristur er ékki
vinur þinn, verður líf þitt raunalegur einstæðingsskapur.
Þess vegna er það ekki hyggilegt af þér að treysta neinum
öðrum en honum.
Það er þér betra þótt allur heimurinn sé þér mótsnúinn,
en að vera í ónáð við Krist.
Af öllum hlutum kærum, lát kærleikann til Krists
yfirgnæfa.
Allar gjafir Guðs skaltu elska af tilefni Krists, en hann
sjálfan skaltu elska vegna hans sjálfs.
Mest af öllu ber að elska hann; hann einn er algerlega
góður og tryggastur allra vina.
í honum og hans vegna eiga vinir þínir og óvinir að vera
þér kærir; það ber að biðja fyrir þeim öllum, svo að Kristi
megi þóknast að láta þá þekkja sig og elska.
Legðu enga stund á að öðlast ást eða orðstýr meðal manna;
það er réttur Guðs. Hann á sér engan líka að dýrð og veldi.
Gaktu með hreinu hugarfari og lát engan svifta þig
frelsi þínu.
Þú átt að vera hreinn og einlægur fyrir Guði, og fram-
ganga í heilleik hjartans fyrir augliti hans, svo að þú verðir
fyllilega frjáls og komist að raun um gæzku hans.
Sannast sagt, nema því eins að Kristur verndi þig og leiði,
af miskunn sinni, færðu aldrei að njóta þess fagnaðar