Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 10

Sameiningin - 01.01.1940, Qupperneq 10
8 Líkræða flutt í kirkju Selkirksafnaðar við útför sé-ra Jóhanns Bjarnasonar, miðvikudaginn 24. janúar, af séra K. K. ólafsijni. Texti — Hebreabréfið 13:7: — Verið minnugir leiðtoga, sem Guðs orð hai'a til yðar talað: virðið fyrir ykkur hvernig æfi þeirra lauk, og líkið síðan eftir trú þeirra. IVent veit eg er efst í huga okkar, er vér komum hér saman í Drottins húsi við þetta tækifæri, að sýna kristilega hluttekningu ekkju, börnum og sifjaliði öllu vors látna bróður og mikilsvirta samverkamanns séra .lóhanns Bjarna- sonar, og í öðru lagi að heiðra minningu hans sem mikil- hæí's kristins kennimanns, er var oss hjartfólginn í starfi um langt skeið, sem vér lærðum að meta sem vin og bróður og söknum nú af heilum hug er hann hefir héðan verið kvaddur svo skjótlega. Þetta mun eiga algerða samleið hjá oss flestum, því þeim mun betur sem vér þektum hann, því betur sem vér kunnum að meta og skilja það, sem fyrir honum vakti í lífi og starfi, og þeim mun kærari sem hann var orðinn oss í samvinnu og sameiginlegri baráttu, því betur ættum vér að geta sett oss inn í tilfinningar og ástæð- ur þeirra, er honum stóðu næstir og því hafa orðið fyrir hinum sárasta missi. Að bera hvers annars byrðar og upp- fylla þannig lögmál Krists, fær þannig hina fylstu merkingu og sönnustu er vér eigum skilyrði til þess að setja oss sem bezt hver um sig í annara spor. Við þetta tækifæri veit eg að almenn hluttekning og samhygð með ástmennum hins látna er samgróin bróðurlegum skilningi og mati á lífi og starfi vors kæra samverkamanns, er svo skyndilega hefir verið kvaddur héðan. Það hvorttveggja skapar andrúmsloft þessarar stundar. “Verið minnugir leiðtoga, sem Guðs orð hafa til yðar talað: virðið fyrir ykkur hvernig æfi þeirra lauk.” — Hvernig æfi þeirra lauk. Vér vitum að hvað ytri ástæður og atvik snertir getur verið mikill munur á því hvernig æfi þeirra lýkur. Þessi orð virðast mér ekki að draga l'jöður yfir það. En þau benda okkur á að æfilok slikra Drottins

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.