Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 5
á§>ametmngtn.
Mánaðarrit til stuðnings lcirkju og Jcristindómi Islendinga
gefið út af Ilinu ev. lút. kirkjuf élagi Isl. í Vesturheimi.
XLVI. WINNIPEGr, NÓVEMBER, 1931 Nr. 11
Gjafir
—Erindi á jólanótt—
Lag: Rock of Ages.
Úti stjörnur, inni ljós!
Engin nótt á 'þvílíkt hrós !
Sérhvert býli’1 á sígrænt tré,
Sérhvert hjarta kærleiks vó.
Ást sig hýr í brúðarkjól,
Börn Guðs halda. dýrSleg jól.
Grjafir tala,—tala hátt,
Tungan þó að segi fátt.
Þöglan skilja ástar yl
Allir menn, sem finna til.
Veit o-ss, Gruð, öll vinamál
Vitni’ um Krist í mannsins sál.
Gjafir tákni, Guð, þinn yl,
Gjöfinai, sem mest er til.
Líka 'bendi’ á. ljósið þitt
Litla æfi-kertið m;tt..—
Fæðing þín var friðargjörð—
Friður, gleði allri jörð.
Jónas A. Sigurðsson.