Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1931, Síða 7

Sameiningin - 01.11.1931, Síða 7
325 ing, ef hann stæði ekki i merku tímariti, sem ber óljúgfróða menn fyrir sögu sinni. En nú er ekki sólarsagan búin með þessu. Þegar litiS er yfir hundrað Ameríkumenn á almanna færi, þá er að vísu engin dýfl- issubúi staddur þar, sennilega; en hitt er mjög ósennilegt að þar sé enginn maður jafnsekur einhverjum fanganum. Bandaríkja- þjóðin er að maklegleikum frægari fyrir margt annað, heldur en fyrir röggsemd í viðureign sinni við lögbrjóta. I.íklega verða fáir til að neita því—ef þeir þekkja nokkuð verulega til hérlends þjóð- lífs—að á móti hverjum einstökum, sem dæmdur er og fangelsaður fyrir einhverja sök, muni að minsta kosti einn maður leika lausum hala jafnsekur honum, ef ekki verri. Sá sorglegi sannleikur er nokkurn veginn augljós. Af hverju hundraði landsbúa munu þá vera tveir menn sekir, svo að fangelsi varðar, annar í haldi, en hinn laus. Svo geipileg eru þau hlutföll! Ekki skal nokkuð fullyrt um það hér, hvort ástandið sé betra norðan við landamærin. En yfirvöldin eru talin í sumum greinum all-mikið röggsamari þar, og borgirnar eru ekki eins gífurlega fjöl- mennar, eins og þær stærstu sunnan línunnar. IlVorttveggja mun að einhverju leyti draga úr lögbrotamergðinni. En þessi orð eru ekki rituð í þeim tilgangi, beinlínis, að gefa nákvæmar skýrslur yfir stórglæpi. Hér er annað á ferðum ennþá alvarlegra, heldur en lögbrotaf jöldinn, svo óskaplegur sem hann þó er. Sá illi á- vöxtur er auðvitað ekki runninn frá góðri rót. Þegar höndin er gjörn á óhæfuverk, þá er eitthvað rangt við hjartað. Það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið rangt við andlegt líf þjóðarinnar, þegar svona mörg af börnum hennar verða óhappamenn. Ef verk- sekir menn nema tveimur af hundraði, hversu margir munu þá þeir vera, sem i fylgsnum hjartans eru ekki lifandi vitund betri en hinir bersyndugu?—Menxr, sem eru alveg eins eigingjarnir, eins í'anglátir í hugsun, eins nærsýnir andlega eins og hávaðinn af lög- brjótaliðinu, þótt þeir hafi annaðhvort af ragmensku eða með kænskuráðum haldið sér innan við vébönd laganiia. Enginn veit um þann hóp, hve fjölmennur hann er, eða hvort hann minkar nokkuð við það, þótt lögleysið sé bælt niður með harðri hendi. En þetta eru alt ávextir af sömu rót, hvort sem óhæfan verður að verki eða kafnar í óskinni. Rótin liggur auðvitað í gölluðu þjóð- lífi, sýktum aldaranda. Og líklega er ekki fólkið norðan landa- mæra svo miklu betur komið í því efni, að ekki niiegi hafa báðar þjóðirnar í huga, þegar skygnst er eftir lækningunni. Hér er þá á ferðum alvörumál mikið, sem kristnir menn í álfu

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.