Sameiningin - 01.11.1931, Síða 9
327
fram alt, að kostað væri kapps um að láta sjálfan heimilisbraginn
§ýna þeim dags daglega fegurð og ágæti kristins lífs. Segjum að
]?að kostaði talsverða fyrirhöfn og sjálfsafneitun að gjöra þetta.
En er það ekki vel tilvinnandi—þó' maður nefni ekki sáluhjálp eða
glötun—ef hægt er með þessu rnóti að hæta til stórra muna úr
einhverju allra versta böli þjóðar vorrar á yfirstandandi tíð?
Enginn má þó skilja þessi orð á þann veg, að hér sé verið að
kasta þungum steini að nokkrum föður eða nokkurri rnóður, sem
ef til vill hefir borið þungan harm út af óhöppum barna sinna.
Langt frá. Heimilisáhrifin eru dýrmæt og afar mikilvæg, en þó
nær það engri átt, að sérstöku heimili hljóti ávalt að vera um að
kenna, ef illa fer. Fjölskyldan er ekkert fullveldi lengur, ekki
heimur út af fyrir sig. Börnin komast snemma undir annarleg
áhrif utan heimilis, á leikvellinum, á strætunum, í skólanum. Þar
kemur umheimur og aldarháttur til sögunnar, og áhrif frá öSrum
heimilum. Svo að þegar talað er um áhrif barnauppeldisins í for-
eldrahúsum, þá má enginn lnugsa sér aö eitt og eitt heimili geti
spornað svo við aldarhættinum, að tryggilegt sé um árangurinn.
Heimilin þurfa að taka sig saman, mörg í einu. kristnir söfnuðir,
heil mannfélög, að glæða trúareldinn á arni hverrar fjölskyldu,
svo að börnin lifi undir samskonar áhrifum í kristilegu tilliti bæði
utan húss og innan sem allra lengst. Verði það gjört sem víðast og
sem trúlegast í nálægri íramtíð, þá er um leið ágæt trvgging fyrir
þvi, að afbrotamanna talan verði langt innan við tvo af hundraði,
þegar næsta kvnslóð er tekin við forráðum í landinu.
G. G.
Fangarnir og kristin
Viðtal við Lazves fangastjóra.
Betrunarhúsið Sing Sing í bænum Ossining í New York riki
mun vera einhver hin nafnkunnasta stofnun þeirrar tegundar á
meginlandi þessu, ef ekki í öllum heimi. Nafntogaðir menn hafa
verið þar fangelsisstjórar. Sá, sem nú ræður húsum þar, heitir
Lewis E. Lawes, maður vel látinn, réttsýnn og mildur í lund, að
sagt er. Hann hefir gjört sér rnikið far um að bæta kjör fang-
anna með ýrnsu móti, og munu sumir telja þá viðleitni nokkuð um
skör fram. En Lawes segir að sig langi til að gjöra úr dýflissunni
samastað ekki verri en það, að menn þori að vænta þar viðreisnar.