Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.11.1931, Blaðsíða 16
334 hagsleg og félagsleg rangindi færa þeirn bölvun og spilling aÖ vöggngjöf. Nei, þaÖ er ekki nóg að syngja sálma. ViÖ þurfum að berjast við synd og f járgræðgi og losta og kúgun hvar sem þær óvættir skjóta upp sínum Ijótu höfðum. Og það jafnvel þó við þurfum að kosta hinu sama til, sem Kristur þurfti að gjalda.— “Við verðum umfram alt að ryðja auðæfahugsjón kristin- dómsins, fjárhalds-hugsjóninni, til rúms í mannfélagslífinu, ef við viljum komast nokkuð áleiðis. Margir af auðkýfingunum—þessir menn, sem ekki gjöra sig ánægða með hóflegan gróöa, en hrúga saman miljónum, sem þeir hafa svo aldrei nein not af—þeir eru hinir verstu glæpafrömuðir þessa lands. Það þarf einhvers konar lnigrekki til að ganga að mönnum með barefli eða byssur og fremja rán; til þess þarf allsterkar taugar að minsta kosti. En hvar er hugrekki þess manns, sem með f járbrellum eða fyrir erfða- skrá föður síns nær rniljón dollara virði af gullforða heimsins á sitt vald og daufheyrist síðan við öllum fortölum og þverneitar aö gjöra nokkuð til að lina kvalir og eymd eða sporna við glæpum í þessari sömu veröld, sem hann hefir fengið gull sitt frá? Jafnvel Capone, syndaselurinn í Chicago, stofnaði “súpu-eldhús’’ í fyrra, þar sem hungraðir menn gátu fengið málsverð fyrir ekki neitt. Og það er meira en rnargir miljónamæringar fást til að gjöra. “Er það reyndar mikil furða þó þessir fangar steli ? Hvar eiga þeir að fá brauð, þegar þeim er ekki svo mikiS sem gefinn kostur á að vinna fyrir sér? Áður fyr var það manni sjálfum að kenna, ef hann komst ekki áfram. En nú er öldin önnur. Með vélum, auði og framleiðslumagni hafa frömunartækin komist : hendur örfárra manna. sem útbvta svo hlunnindum launa og upp- hafningar eftir vild sinni. Og hvers eiga þá fátæklingarnir úr- kosta. olnboeabörnin. í slíku þióðlífi? Sama sem einskis. Eg er enginn Sósíalisti, Bolsevíki eða Kommúnisti, en eg finn til þess betur dag frá degi, að annað eins ástand veröur að breytast til batnaðar. Eg vona að breytingin komi—og truið mér, hún er á leiðinni—á friðsamlegan liátt. Eg vona, að hún gangi í garð án blóðsúthellinga eða stjórnarbyltingar. En hún verður að koma, os kemur, með einhveriu móti. Ef bara kirkjunni tekst að fá þessa m'enn, sem hafa náð undir sig gullinu okkar, til að gangast við allri ábirgðinni, ef henni tekst að greiða kristinni fjárhalds- hugsjón og gömlum og góðum tækifæra-jöfnuði veg aftur inn í hérlent þjóðlíf, þá getur það orðið mannfélaginu til viðreisnar. op til að stemma stigu við glæpaflóðinu með öllum þess ófögnuði.” Svo liljóðar umsögn þessa valinkunna manns um viðfangsefni

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.