Sameiningin - 01.11.1931, Side 17
335
kirkjunnar í sambandi viÖ glæpamálið. Verið getur, að í áhuga
sínum fyrir nauðsynlegum umbótum á sviði þessu, hafi hann ekki
gjört sér nógu glögga grein fyrir aðal-verkefni kirkjunnar, sem er
andlegs eðlis, og snertir mannshjartað fremur en mannfélagið. En
hver vill kasta á hann þutigum steini fyrir það ? Ef kirkjan lætur
sér nægja sálmasönginn, hversu góður sem hann er, og andlausa
endurtekning á gömlum fræðum, hversu sönn, setn þau eru í sjálfu
sér, þá hefir hún mist af hlutverki sínu að meira en hálfu leyti.
H'ún þarf að kynna sér ástandið eins og það er, og grafast eftir
orsökum. Það er að sjálfsögðu ekki hlutverk hennar að jafna
niður heimsauðinum eða “að yfirgefa Guðs orð til að þjóna fvrir
borðum,” eins og postularnir komust að orði. En ef ástandið er í
raun og veru svo alvarlegt, sem út lítur fyrir ; ef mikill hluti þjóð-
arinnar er að glata sjálfstæði sínu, f járhagslegu og mannfélagslegu :
ef þúsundir ungmenna sogast niður í hringiðu glæjtalifsins árlega—
og hver neitar því, að svo sé?—þá er hjákátlegt að hugsa sér, að
kirkjan geti látið það alt saman gott heita. Geta slíkir hlutir átt sér
stað, nema þvi að eins að eitthvað sé hrajiallega rangt við hjartalag-
ið og hugsunarháttinn hjá miklum hluta þjóðariniiar ? Þjóðarmeihin
eru andleg fyrst og fremst, nú eins og jafnan áður. Og það er
sannarlega kirkjunnar verk að fást við þau mein. Hún þarf að
gjört sér ljóst, hver þau eru sérstaklega og annast svo lækninguna
með hugrekki og trúmensku.
—G. G.
I
Náðarreynslan
eða GLEÐIN 1 GUÐI.
Rœða eftir Séra Sigurð Ólafsson.
Eátt er það, sem hefir meiri þýðingu fyrir hamingju hvers-
dagslífsins en ]>akklát viðurkenning dásamlegrar náðar Guðs, sem
við öll erum aðnjótandi.
Sérilagi hefir þakklátsemin mikla þýðingu, ef okkur kann að
finnast ýmislegt móti blása. Þegar skuggar falla á æfileiðina og
við göngum í hálfrökkri, er það blessunarríkt að muna föðurást
Guðs, sem aldrei brevtist, og aldrei þreytist.
Ef efnalega viðhorfið er erfitt og útlitið í þeirri merkingu er
tvísýnt, eins og svo víða á sér nú stað, er gott að muna að
erfiðari gæti þó afstaðan verið. Ef heilsan er eitthvað biluð, ber