Sameiningin - 01.11.1931, Side 24
342
sveipaðar í grænbláa móðu, sem nú var óðurn að dökna og verða
fjólublá.
“Þér heyrðuð sagt frá því að eg var á himnum ofurlitla
stund,” sagði hann eftir nokkra þögn.
“Já, eg heyrði urn það. Eruð þér farinn að efast um að þetta
hafi í sannleika komið fyrir yður?”
“Ó-nei,” sagði Tucker blátt áfram með sannfæringu. “Eg
var þar.”
“Já, hann var þar,” sagði kona Tuckers. “Það var alveg eins
og bróðir Gaines lýsir þeim hlutum. Hann fór inn um perluhliðin
Og gekk um gullstrætin. Hann hafði kórónu á höfðinu og hörpu í
hendi; hann var skrýddur hvítri skikkju og söng með himnaskar-
anum.”
“Eg gjörði það sem eg gat,” bætti Tucker við. “Eg er ekki
mikill söngmaður.”
Nú varð þögn um stund, og prestur beið eftir því, að annað
hvort hjónanna héldi áfram.
“Eg kunni ekki við mig þar,” sagði Tucker eftir stundar korn.
“Fyrst, eftir að eg konr til baka, talaði eg víst heldur mikið. Mér
varð einhvern veginn svo mikið um þetta, held eg. Mér dettur
ekki í hug að neita því að þessi sýn hafi borið af öllu, sem dauð-
leg augu hafa séð, bæði að tign og dýrð— en eg kann víst ekki
sérlega vel við mig í stórborgum.”
“Það fór ekki vel um hann þar, einhvern veginn,” sagði kona
Tuckers, “og hann vill helzt ekki fara þangað aftur.”
“Það ná engin orð yfir dýrðina þar,” sagði Tucker. “Það var
mikilfengleg sjón. Dýrðinni i nýju Jerúsalem verður ekki með
orðum lýst; það er víst og satt.” En svo bætti hann við: “Eg
hefi aldrei borist rnikið á í klæðaburði.”
“Hann kunni ekki við sig með kórónuna á höfðinu. Og svo
það, að vera ekki í neiriu nema hvítri skikkju. Það var í honum
taugaóstyrkur.”
“Eg hefi aldrei verið rnikill söngmaSur,” sagði Tucker, “eg
yrði hálfsmeykur við að handleika hörpuna—það yrði víst hljóð,
sem eg fengi úr henni.”
“Svo var allra mesti aragrúi af fólki þar, Tucker,” sagði
konan lians, til að minna hann á.
“Eins og í öllum borgurn,” sagði Tucker, “eins og æfinlega i
stórborgum. Urmull af fólki. Og rnanni finst eins og hann sé
tapaður í þvílikri þyrpingu, eins og alt af sé verið að ýta við manni.
Það fór ekkert vel um mig þar, innan um borgarlýðinn og alt
annað.”