Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.11.1931, Page 34

Sameiningin - 01.11.1931, Page 34
352 horfandi upp á hina elskulegu Guðs móður, með fullu trúnaÓar- trausti. Eg ímynda mér aS börnin séu sérstaklega eign hennar. Þess vegna hlýtur það aÖ vera mikil blessun að deyja ungur. En við þorum aldrei að minnast á hitt barnið, sem dó án þess að hljóta nafn. Það dó óskírt. Og það er sagt um sálir þeirra barna, sem deyja óskírð, að þær séu altaf á sveimi í myrkrageimi, milli himins og heljar. Hugsum þá skelfingu, að falla úr ástríkum örmum móður- innar, niður í nepju kulda og myrkurs, og skjálfa og veina að eilífu, og tilheyra ekki neinum. Við höfum i Eisenach hjúkrunarhús fyrir börn. Það er áfast-við klaustrið. Elísabet helga kom því á stofn, vegna barna, sem engan áttu að. Ef EHsabet gæti nú aðeins komið á stofn einhverri vistarveru nærri hliðum Paradísar, þar sem að sálir hinna óskírðu ungbarna gætu átt athvarf. En eg býst við að hún sé svo hátt i himninum, og svo fjarri hliðum Paradísar, að hún ómögulega geti heyrt hinar sáru harmaraddir hinna yfir- gefnu ungbarna. Ef til vill myndi Guð heldur ekki leyfa Elísabetu að fram- kvæma þetta, fyrst hann mat hana svo mikils, vegna þess að hún vfirgaf eigin börn. Næstar að aldri eru tvær stúlkur. Eru þær tviburar. Pfeitir önnur Krímhildur, eftir ömmu okkar. Hin heitir Atlantis; faðir okkar vildi láta hana heita það, af tilefni hins nýja heims, sem hafði verið uppgötvaður fyrir handan hafið af Kristófer Kólum- bus. Faðir okkar var oft búinn að brjóta heilann um slíkan heim. Þá komu tveir sveinar, tviburar; Bónifasíus Pollux og Kristó- fer Kastor. Næst fæddist drengur, sem lifði aðeins fáar vikur. Þá er Tekla, ungbarn, sem er leikfang og uppáhald okkar allra. Þetta er nú alt fólkið, sem eg get sagt eg þekki, nema auð- vitað Marteinn Eúter, sonur námumannsins, sem Úrsúla frænka er svo góð við. Okkur þykir eins vænt um hann eins og hann tilheyrði okkar eigin fjölskyldu. Plann er næstum jafnaldri Friðriks, sem álítur enga jafn- ingja Eúters. Eúter hefir fjarska fallega rödd; er mjög trúhneigður, en þó glaðlyndur oftast nær. Það var þetta tvent, sem kom Úrsúlu frænku til að veita Lúter athygli.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.