Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 10

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 10
að gera. Ríki Krists er andlegt samfélag þeirra, er í nafni Drottins síns og frelsara og samkvæmt kenningu hans leita sálum sínum friðar og fullomnunar í samfélagi við Guð. “Sú himneska Jerúsalem er frjáls, og hún er vor móðir.” —B. B. J. Kirkja bræðranna Ekki alls fyrir löngu rakst eg, í einhverju riti, á smá-æfintýri, sem mér fanst vera lærdómsríkt. Það var á þessa leið : Bræður tveir áttu sér sinn búgarðinn hvor. Akvegurinn einn skildi garðana að. Bjó hvor bræðranna í sínu husi. Mikill munur var á lifskjörum þeirra. Annar átti konu og börn, en hinn var einbúi. Eitt kvöld um uppskeru-leytið sat sá bróðirinn, sem fjölskyld- una átti, inni í húsi sínu, hvíldi sig eftir erfiði dagsins og naut heimilisgleðinnar með konu og börnum. Varð honum þá að hugsa til bróður síns og segir við sjálfan sig. “Veslings bróðir minn! Nú hefst hann einn við í kofa sínum, hugdapur og glcðivana. Hyað get eg gert það, er honum megi að gleði verða? Sé eg hvað eg get aðhafst honum til fagnaðarauka. Eg skal fara út á akur minn í nótt meðan myrkrið hylur og bera kornbundini aí mínum akri yfir á akur hans. Þegar hann svo safnar korninu og þreskir, þá fær það honum gleði, hve mikil uppskeran er.” Lét bróðirinn áform þetta ekki undir höfuð leggjast, heldur fór út og har kornbundin af akri sínum alla nóttina út á akur hróð- ur síns og dreifði þeim um akurinn viða, svo ekki bæri á þeim innan um hitt kornið, sem þar var fyrir. Næstu nótt á eftir hélt hann áfram þessari iðju og þriðju nótt sömuleiðis. Nú er að segja frá hinum bróðurnum. Það hið sama kvöld, sem bróðir hans fyrst hugsaði til hans og áformaði að gera honum það til gleði, er nú hefir sagt verið, sat hann líka og hugsaði í ein- veru um bróður sinn. Hann segir við sjálfan sig: “Veslings bróðir minn! Eg hefi fyrir engum að sjá nema sjálfum mér, en hann má berjast til að hafa ofan af fyrir stórri fjölskyldu. Lík- lega er hann nú fullur kviða og óttast að uppskera lians nægi ekki fjölskyldunni til framfærslu. Sé eg hvað eg get gert til að gleðja hann. Eg skal fara út nú í nótt meðan myrkrið hylur og bera kornbundini úr akri mínum yfir i akur hans : svo þegar hann hirðir kornið og þreskir verður uppskera hans meiri en hann átti von á, og þá fagnar hjarta hans.”

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.