Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 20

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 20
82 irnar viö hiö illa. Kærleiki Krists endurleysir heiminn meö því aö búa réttlætinu og kærleikanum skilyröi til þess aö geta orðiö almáttug. í>annig “var Guð í Kristi og sætti heiminn við sig.” ísraelsmenn fyrir daga Krists fundu mjög til syndar og eymdar, og var þrá eftir hjálp- ræöi samfara. Lögmálið hélt aö vísu á lofti heilagleika hugsjón, en það bjó menn engu afli til þess að sigrast á synclinni eöa verða heilagir. Og friðþægingarfórnirnar, sem viö það voru tengdar, töldu sumir mestu spámenn Hebrea áhrifalausar, og viðleitni manna til þess að öðlast heilagleika lauk svo, að að þeir örvæntu um hann. En frum- kirkjan fékk nýjan þrótt til þess að sigrast á syndinni við dæmi Krists, dauöa og upprisu. Þannig rættist fyrirheitiö, sem Jesús hafði gefið lærisveinum sínum samkvæmt frásögn Jóhannesarguðspjalls. Skilnaður hans við þá varö þeim til góös, af því að þá kom huggarinn til þeirra, veitti þeim skilning á lífi hans og kenningu og leiddi þá í allan sannleika. Postularnir skildu það þegar frá uppliafi, að við Hvítasunnuatburð- inn rættist von, sem mátti rekja til spámanna Hebrea og sálmaskálda. Þeir fundu það, að þeim var falið að miðla öðrum þeirri gjöf. Þeir skírðu Kornelius og vini hans, er þeir sáu, að þeir höfðu fengið heilagan anda. Þeir tóku nýjar ákvarðanir og skírskotuöu þar til valcls andans. Andinn hafði veitt þeim frelsi og diörfung með mætti sínum. Þessi kraftur er ekki einskorðaður við innri mál kirkjunnár, held- ur á hann erindi til alls heimsins. Andinn vill leiöa í ljós sanna merk- ingu syndar, réttlætis og dóms með því að láta birtuna af opinberun Krists leggja á heiminn. Heimurinn hefir sínar hugsanir um öll þessi mál og keppir að sínum eigin hugsjónum, en þar verður ekki komist að sannleikskjarnanum fyr en þau hafa verið borin saman við kenn- ingu Krists með helgun og upplýsingu andans. Bölið í heiminum hefir virzt og virðist mörgum enn eyða trúnni á Guð kærleikans. Vér trúum því, að æðri þekking muni komast að þeirri niðurstöðu, að siðfcrffilegt böl að minsta kosti standi i sambandi við frjálsræði mannsins. Svo langt sem sjón vor nær, gæti ekki verið til án valfrelsis heimur af andlegum verum, sem megnaði að elska Guð aftur á móti. Þar sem hið illa gœti alls ekki verið til, væru aðeins vélbrúðir í ríki Guðs. Það gæti ekki verið ríki frjálsra anda. Eins og Kristur kendi, erum vér verur með fullri ábyrgð. sem þjónum Guði bezt með því að berjast gegn hinu illa. Vér gleymum þvi ekki, að Páll postuli, sem þekti vandamálið um hið illa, boðar enga beina lausn frá því. Það hefir að skoðun hans áhrif á allar skepnur, eins og mann- kynið. Hann horfir fram til þess, er fyrirætlun Guðs nær fullkomnun, þá fvrst verður vandamálið leyst. Uppgötvanir síðustu tíma á stærð stjörnugeimsins hafa hert á því, hversu reikistjarnan, sem vér Iifum á, sé auvirðileg. Og margir draga af því ályktun um smæð mannsins í augum Guðs. Vér finnum, að þar er verið að blanda saman gildi efnisins og siðgæðisins. Gildi mannsins

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.