Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 19

Sameiningin - 01.03.1932, Síða 19
8i þroskast við guBlegar sýnir miklu hebresku 'spániannanna. Þannig var gatan greicld fyrir komu Krists. Allur þroski mannsins og afrek mannsandans benda í áttina til hans. En þrátt fyrir það þótt alt hiö bezta í lífi mannanna yrði fullkomiS hjá honum, þá var fagnaöar- erindið um Krist nýtt heiminum, Þaö kom heimsmenningunni, þar sem þaö birtist, í vanda, og hana jafnvel hrylti viö því. Þaö var ‘'Gyöing- um hneyksli og Grikkjum heimska.” Á fyrri stigum mannkynssög- unnar og enda hjá Gyöingum var þekkingin á Guöi takmörkuö, óbein og greind frá sumum sjónarmiöum mannlífsins. Gyðingarnir höfðu lögmálið, Grikkir heimspeki sína, en hvorugt veitti beinan þrótt til siðferðilegrar iireytni. í Kristi bjó aftur á móti “öll fylling guödóms- ins líkandega,” aö trú þeirra manna, er honum fylgdu, og viö þaö urðu öll áhugamál mannkynsins lögö í arma fööursins á himnum. Kenningin um holdtekju Krists getur ein gefið rétta lýsingu á skyldleika hans viö Guö annars vegar og viö manninn hins vegar. “Orðiö (Logos) varö hold og bjó með oss.” Þannig veröur kristin guðfræði í samræmi viö þá nútímaskoðun á heimsrásinni, sem áöur er getið. Einnig gefa þessi orð þaö til kynna aö “crðið” liafi birzt í timanum og mannkynið náð fullkomnun sinni hjá Jesú Kristi. Þaö var, eins og Páll postuli segir, ásetningur Guðs, “sem hann hafði með sjálfum sér ákveðiö aö framkvæma, er fylling tímans kæmi—:að hann ætlaði að safna öllu því, sem er á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í Kristi.” Og þannig birtist hjá Ivristi sú guðsopin- berun, er gjörir hann að drotni og meistara mannlífsins. Hér er leynd- ardómur kraftarins og þekkingarinnar, sem knýr rnenn til að leita hans, er mest á reynir. Ekkert jafnast á við áhrifavald hans. Það voru postularnir, sem hófu fyrst að kenna heiminum þetta. Þeir boðuðu upprisu Krists frá dauðum og kölluðu menn til að veita honum viðtöku sem frelsara og drotni. Nýr kraftur, kraftur heilags anda, var að starfi meðal mannanna. Kristni söfnuðurinn haföi tekið að erfðum frá spámönnum Gyð- inga trúna á einn Guö. En er safnaðarmennirnir hugleiddu opinberun Guðs í Kristi og fyrir heilagan anda, mótaðist þrenningarlærdómurinn smám saman. Menn fundu bað, að einingu guðdómsins varð ekki lýst með því að likja henni við eina persónu. Það sem vér nefnum per- sónuleika hjá manninum hlýtur að visu að felast í veru Guðs, en per- sónuleikinn, eins og vér þekkjum hann hjá manninum, nægir þó ekki til þess að lýsa til fulls eðli Guös. Sú hugsun birtist í orðunum al- kunnu: “Náðin drottins Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður öllum.” Aðalefnið í kenningu Krists varö föðureðli Guðs og riki hans. Grundvallarlög þess rikis eru réttlæti, kærleiki, fyrirgefning og friður. Kristur kendi það, að Guð stjórnaði heiminum með kærleika. Þá er mennirnir líða fyrir sakir réttlætisins, flytja þeir heiminum kærleika Guðs, eins og hann leitar mannkyninu hjálpræðis. Sú staðreynd Inrtir lögmál krossins. Krossinn felur í sér alla baráttu kærleikans um ald-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.