Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1932, Side 29

Sameiningin - 01.03.1932, Side 29
91 viöurkennum þaö, aS sá kærleiki til hans einn hefir aukiö þekkingu manna á e'ðli hans og gefi'ð þeim von um það, að komast lengra inn í leyndardóma Guðs. Vér könnumst fyllilega við það, að auk helgi- siðatilbeiðslu kirkjunnar þurfi kærleikurinn til Krists að koma fram i mörgum myndum. Á síðustu tímum hafa menn glögt fundið gildi ákveðinna tilbeiðslustunda, þar sem þögn og íhugun hefir ríkt. Og það er einnig þörf á bænum af munni fram og frjálsri tilbeiðslu. En í öllu slíku er kenning Krists mælikvarðinn. Vér tilbiðjum föðurinn fyrir soninn með fulltingi heilags anda. Og þeir, sem tilbiðja, verða að tilbiðja hann í anda og sannleika. —Prestafélagsritið. Úr gömlum dagbókum Eftir séra S. S. Christopherson Framh. ÞaÖ fór að líða á daginn og halla nær kvöldi. Sólin gekk lækkandi til vesturs. Mér fór a8 lengja eftir þvi, a8 komast út úr skóginum. Mig fór alvarlega að gruna aÖ eg hefði vilst. Eg' kleif upp hæð nokkra allbratta til þess að átta mig. Sá eg þá, mér til mikils angurs, að eg hafði vilst vegna snjósins og snúið i öfuga átt. Það var enginn vafi á því. Skógurinn lá langt í allar áttir. Það sáust raðir af greniklæddum hæÖum, sem tóku hver við af annari. Það sást rjóður í f jarska, og sást þar í gegn um sléttlendi skóglaust. Eg þóttist vita, að þangað væri Erfurt að leita. Það tók fast að dimma og nestið var búið. Eg vissi af smáþorpum hér og þar niöri í dalverpunum. Það sást ekki votta fyrir reyk neins- staðar, og það varð ekki manna vart. Smá kestir sáust hér og þar, þar sem landið hafði verið rutt. Eg gekk að einum kestinum. Eg bjóst við að ]>að væri götustígur þar eftir þá, sem ruddu skóginn; bjóst eg við aÖ stígurinn myndi liggja að kofa einhvers þeirra manna, sem hafa það að atvinnu að brenna kol. Ilugðist eg að njóta þar skjóls og varma. En nú datt myrkrið á jafnvel áður en eg náði að fyrsta kestinum. Nú tók að snjóa, og það virtist ekki hættulaust að skilja við Ijreiða og vel troðna braut, og taka óvissan stíg. Eg ásetti mér því að búa sem best við það, sem var fyrir hendi. Það var ekki þar með sagt, að það væri með öllu óþolandi. Eg hafði tinnu meðferðis. Tók eg til að tína saman sprek og þurra kvisti. Gat eg kveikt eld unl síðir. Mér var auðvitað kalt, og svangur var eg líka. En eg setti það ekki fyrir mig. Það var að- eins auka fasta. Mér fanst það ekki tiltökumál, þótt ferðalag

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.