Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1932, Page 13

Sameiningin - 01.03.1932, Page 13
75 vopnin nú. Þegar vi'Ö deilum, er aÖal-atriðið, að verða ekki undir. Deilu-efnið getur hafa verið réttmætt í upphafi, en þegar út í deilur er komið, hvort heldur milli einstaklinga eða flokka, ]?á hverfur. það oft sjálft fyrir ákafanum i okkur að hafa betur í deilunni, ekki svo mjög málefnisins vegna, heldur metnaðar-hé- gómans vegna. Það er svo gaman að sigrast á mótstöðumanninum, svo gaman að láta aldrei sjálfur undan. Alt er þetta sýnishorn á dýrseðlinu í okkur mönnunum. Það er eins og mannlífið sé látlaus viðleitni einstakra manna og mann- flokka að ná sem flestum kornbundinum lífsins á sinn akur úr akri bræðra sinna. Því hefir verið gefið virðulegt nafn og kallað sam- kepni. Um dýrin er það kunnugt, að einatt hópa þau sig saman til baráttu fyrir tilveru sinni og samkepni við önnur dýr. Eins er um samkepni mannanna. Mennirnir hafa hópað sig saman og myndað þjóðfélög. Mestur hluti mannkynssögunnar frá upphafi til þessa dags er skýrsla um það, hvernig þjóðunum hefir gengið að kúga og drepa hverjar aðra. Metnaður þjóðanna er með mörgu móti. I fornöld var barist til frægðar, og varð sú þjóðin frægust, sem flestar aðrar þjóðir gat kúgaö undir sig. Á siðari tímum berjast þjóðirnar einkum til fjár, bæði með sverðsegg og lagalegu ofbeldi. Þær þjóðir, sem svo eru umkomulitlar, að þær hafa hvorki völd né auð að miklast af, miklast þá af því, að þær séu öllum þjóðum gáfaðri! Bál metnaðarins hafa þjóðirnar kynt, hver hjá sér, og bálinu hafa verið valin háleit heiti: “ættjarðarást,” “þjóðrækni,” o. fl. Saga þjóðanna á liðnum öldum sannar, að þegar bálin hafa kynt verið nægilega heit heima fyrir, |)á fer alt í bál og brand milli þjóðanna. Er þar skemst að minnast alþjóða- stríðsins 1914-1918 og allra hörmunganna síðan. Fáir eru nú lengur svo blindir, að þeir kenni aðeins einni þjóð um striðið. Stríðiö var ávöxtur samkepnishyggjunnar, sem rikt hefir hjá öllum þjóðum. Eftir er menningar-þjóðir veraldarinnar höfðu flogist á í f jög- ur ár á vígvöllum, hófst viðskiftastríð, sem enn stendur. Framan af var það sem leikur. Menn fóru að veðja um gangverð varnings og gjaldeyris. Menn hugðust ríkir verða á ágizkunum tómum; þeir veðjuðu um það, hvort hveitikorn stigi í verði á morgun eður lækkaði, hvort gengi þessa hlutabréfsins eður hins færi hækkandi eður lækkandi daginn eftir. Það var því líkast sem almenningur allur væri kominn með sparisjóð sinn til Monte Carlo og ætlaði sér að margfalda hann á einu kvöldi við lukkuhjólið. En þegar minst varði sprakk spilabankinn. Langflestir höfðu þá tapað

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.