Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1932, Page 30

Sameiningin - 01.03.1932, Page 30
92 æfinnar byrjaSi meÖ þrautum og hættum. Því var ætíð þannig farið í dýrlingasögunum, álfasögum eða öðrum skáldsögum, þegar rnikið stendur til. Um nóttina heyrðist óhljóðið í storminum, þegar hann þaut inn á milli trjánna. Það voru ekki hinar breyti- legu og blíðu sumar raddir, er heyrast stundum i eykarskógi. Það heyrðust skerandi kveinstafs-raddir og tilbreytingalaus sorgarljóð. Eg kendi órólegheita, sem eg aldrei hafði orðið var við fyr. Eg vissi af ræningjaflokkum inni i skóginum. Það heyrðist í f jar- lægð ýlfur og gjamm í úlfunum. En þaö var ekki hræðsla, sem raskaði hugsunum mínum; minsta kosti, ekki hræðsla fyrir líkam- iegum meiðslum. Það komu upp i huga mér sögur af hálfviltum veiðimönnum, af tryltum glæpamönnum, með illa anda á hælum sér; sögur, sem féllu í samræmi við æst ímyndunarafl mitt og Eisu, þegar amma okkar var aö segja okkur þær við arineldinn heima. Allar þessar sögur gerðu nú sál mína tiifinningalausa og sinnulausa með þeim áhrifum, sem þær höfðu á mig. Var ekki líka eg sakfallin skepna? Voru ekki hinir illu andar í raun og veru of nærri mér? Hvað gat varnað þeim frá því að hremma mig? Var sá nokkur, á himni eða jörð, sem skipaði sér við hlið mér? Var leyfilegt fyrir mig að horfa með fullu trausti til Guðs. Hann elskar þá aðeins, sem eru heilagir. Mátti eg flýja til Krists? Hann er dómarinn! Svo voðalegt sem það er að hlusta á óhljóð hinna ótal fylk- inga illra anda. Hræðilegra miklu verður það að heyra rödd dómarans, sem hljómar frá hinu snæhvíta dómarasæti hans. Syndir mínar tóku nú að rísa mér fyrir hugskotssjónum: Hirðuleysi um að biðja; ófullkomin meinlætaverk, hálfgerðar syndajátningar, metnaðarhugsanir, o. fl. Þessar hugsanir og margar aðrar fyltu hugann. Grunnlaust undirdjúp sorgar og þjáninga virtist opnast fyrir fótum mér. Eg þóttist ekki sjá neinn veg út úr þessum hræðilegu ógöngum, frem- ur en út úr þessum hræðilega skógi. Eg forðaðist að hugsa; gekk aftur og fram og las upphátt boðorðin, Maríu-bæn og annara dýrlinga. Virtist þetta hafa frið- andi áhrif á mig; einkum þegar eg las Faðirvorið og trúarjátning- una. Að síðustu fór að morgna. Lá-halla morgungeislarnir smugu inn á milli grenitrjánna, sem stóðu rauðlituð. Eg hugsaði til hinnar sætu guðsmóður og las bæn hennar; varð það mér til hug- svölunar. Idjjarta mitt varð léttara við það að yfirgefa skuggafylgsni

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.