Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1924, Side 6

Sameiningin - 01.02.1924, Side 6
36 Lundúnum, en á sumrum fóru þau oft til Skotlands í átthaga MacDonalds. MacDonald er Skoti í húð og hár. Börn áttu þau fimm og höföu þau ávalt með sér. Voru þaö yndislegi'r hvíldardagar, og þá jafnaðarlega skemt sér úti á grænum grund- um og við fiskisæl vatnsfljót. Á kvöldin sat MacDonald við latínu-stíl og beygingar latneskra sagna, með konuna sína fyrir kennara. Langferðir fóru þau hjónin margar á þessum árum, til Can- ada, Bandaríkja, Suður-Afríku og Indlands, og um alt megin- land Evrópu.aftur og aftur. Var það eigi síður til fróðleiks en skemtunar, að farnar voru ferðir þessar, enda er sagt, að fáir stjórnarformenn !Breta hafi haft til brunns að bera jafn-mikla þekkingu á þjóðum heimsins og Ramsay MacDonald. Þetta voru sólskinsárin í ilífi MacDonalds, en milli þeirra og ríkisstjórnar á Bretlandi lá langur og dimmur dalur. Árið 1911 misti; MacDonald konu sína. Það ár rnisti hann einnig yngstu dóttur sína og móður sína, sem hann unni heitt. Þá varð um hrið lífið honum óbærilegt. Hann tók sig út úr heiminum og hafðist við í Lossiemouth á Skotlandi. þar sem æskustöðvar hans höfðu verið. En er frá leiö, kastaði hann sér á ný út í stjórnmála-flóöið, enda var ekki stórviðburðanna langt að bíða. Stríðið s'kall á 1914. MacDonald var einn þeirra fáu, sem barðist fyrir því, að Bretar stæðu hjá. Varð hann fyrir því fyrir mikilli óvild. En aldrei misti hann virðingu jafnve'l skæð- ustu andstæðinga. Lloyd George hefir ávalt þótt mikið koma til MacDonalds, og fórust honum orð á þessa leið : “MacDonald er einhver bezti vinurinn, sem eg á. Hvort sem hann er með stríðinu eða móti þvi, skal aldrei eitt orð fara út af mínum vör- um móti honum.” Ramsay MacDonald er maður mjög bókhneigöur og ann skáldskap og listum. Ávalt fer hann með börnum sinum um jólaleytið til átthaganna á Skotlandi, og les þá jafnan upphátt fyrir ]jau sögur Walter Scotts. Kunningi hans segir, að hann kunni Burns utanbókar, aftur á bak og áfram. Hann er vel að sér i tungumálum og bókmentum fornum og nýjum. Trú- hneigður rnaður er hann og hefir jafnmiklar mætur á prédikun- um John Knox eins og gamlir íslendingar á húslestrum Vídalíns. Enda hafði hann ætlað sér það, er hann hafði heðið ósigur við kosningar 1918, að setjast i helgan stein og gefa sig við því einu, að ri'ta æfisögu þess hetjule’ga skozka kirkjuföður.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.