Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.02.1924, Page 13

Sameiningin - 01.02.1924, Page 13
43 ttm ekki kenningum hans, fremur en okkur sýnist. Fáir þora aö vísu aö bera Ibrigöur á, aö hann hafi kent hinn besta siöa- lærdóm, því að siðferði'shreinleiki hans er svo auðsær. En menn nota hina aðferðina: að hártoga orð hans og bera brigöur á að hann hafi' talað þau.— En þá spyrja þeir, sem trúa: Hversvegna trúðu lærisveinar hans á hann, þeir, sem alt af voru með honum, allir nema Júdas—? Þeir trúðu á hann vegna þess, sem þeir höfðu heyrt og séð. Það var ekki hægt að flækja þá með neinum blekking- um og vífilengjum; þeir vissu og vitnuðu um, að hann væri Kristur sonur hins li’fanda Guðs. Eg vil í dag, í eins mikilli alvöru og með (éins ákveðnum orðum eins og eg hefi ráð á, beina því að ykkur öllum að hugsa vel um það, hvað þig eigiS að gera við Jesúm, og ákveða það með eins miklu sannfæringarafli og þið eigið til. — Það er ekki unt fyrir mig að breyta hugsun ykkar á Jesú, síst á einu augna- bliki. Eg er aðeins einn af hinum minstu þjónum Jesú. Það er Jesús sjálfur, sem þið eigið við, en ekki eg. Þiö getið dæmt mig, þið getið dæmt oið mín, eins og ykkur sýnist, en þið kom- ist ekki hjá því að gera upp reikninga ykkar við Jesúm. Það er hjarta ykkar, samviska vkkar, sem aldrei fær frið, nema þið gerið eitthvað við Jesúm, segið annaðhvort nei eða já við hann: meðtakið hann, sem frelsara ykkar, eða hafnið hon- um algerléga. Þið fyrirgefið mér, þótt eg tali svo ákveðið, eins og eg ætti von á ,að þið hefðuð ekki meðtekið Jesúm sem frelsara ykkar. Eg get ekki rannsakað hjörtun; — Guð einn getur rannsakað hjörtun—en eg veit aðeins, hversu okkar allra er freistað til að afneita guðdómi Jesú, og eg veit hversu áríðandi það er fyrir okkur að vera ekki hálfvolg í trúnni á frelsara okkar. Jesús hefir gerbreytt heiminum með kenningu sinni. Alt hið' æðsta andlega líf mestu menningarþjóða heimsins hefir snúist um persónu Jesú hátt á nítjándu öld. Um allar þessar aldir hefir Jesús yeitt óteljandi miljónum andlegan frið og' heilaga gleði. Hann hefir verið mæðrum okkar og feðrum hin æðsta huggun og von á mörgum umliðnum öldum. Feður okkar og mæður hafa bygt á honum sína eilífu velférð, og hann hefir verið þeim hin styrkasta stoð i lífsbaráttu þeirra. Er það þá ekki hyggilegt fyrir okkur að gera okkur far um að ákveða afstöðu okkar við hann? Eða er Jesús oröinn úreltur? Er hann búinn að enda ætlun- arverk sitt? — Er Jesús að minka, en við að stækka svo mikið, að við þurfum hans ekki framar við? Á trúin á guðdóm Jesú

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.