Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1927, Síða 9

Sameiningin - 01.03.1927, Síða 9
71 hefir í sjálfum sér, er auðvelt aS ná þegar athygli allrar þjóðar- innar, safna henni til uppreistar gegn útlendingunum, leiða hana til sigurs í hverjum bardaga, fara með valdi til annara landa, rífa rómvers'ka örninn niður af kapítólium og setjast sjálfur í hásæti Tíberíusar í Róm.. Hin leiðin hlaut að verða erfið og upp á móti. Fáir sem engir myndu skilja hann. Hvergi yrði honum fagnað. Hvarvetna yrði hann að fara einn eða með fáum öðrum. Flestir myndu snúast á móti honum. Kennilýður og stjórnendur landsins myndu ofsækja hann. Hungur myndi hann líða og miklar sorgir. Leiðin sú gæti ekki orðið löng. Hún hlyti að enda í smán og kvalafullum dauða. Allar þessar myndir svífa fyrir augum hans, og allar þessar hugsanir og ótal fleiri hertaka huga hans. Hann er aleinn með þessar hugsanir daga og nætur. Hungur og þreyta sýkja líkama hans, og kvalir hungursins og þreytunnar bætast við þjáningar sálarinnar. Þannig er ástand hans og líðan, er freistingarnar taka að ásækja hann. Með því að athuga nákvæmlega eðli freisting- anna eins og þeim er lýst, fáum við séð, að raunar ganga þær allar í sömu átt. Það eru freistingar til þess, að fara veginn slétta og greiðfæra; nota vald sitt sjálfum sér í hag; komast sjálfur á hæstu tinda, enda þótt í sölurnar verði að leggja skylduna og samvizk- una. Við getum raunar sagt, að það sé freistingarnar almennu og illu, sem ásækja alla okkur mennina og tæla okkur tif þess að elska okkur sjálfa og leita eigin hæginda og vellíðunar, en fótumtroða hinar æðri hugsjónir, hugsjónir hins guðlega og eilífa, hugsjónir kærleikans og sannleikans, — hugsjónir göfugrar þjónustusemi í þarfir GuSs og alheimsins. Þar sem Jesús dvelur í einverunni og virðir fyrir sér þær brautir, sem1 hann í anda sér að legið geta framundan, taka að striða á hann þessar freistingar. Það eru nefndar þrjár freisting- ar, sem hver eftir aðra sækja á hann. Allar miða þær í eina átt, þá átt að svíkja háleita köllun sína og þjóna sjálfum sér. Fyrsta freistingin er hin alkunna ástríöa, er ásækir flesta menn meira eða minna, og við nefnum gróðfffýsn, fýsnin að breyta öllu í brauð og auð. Náttúrleg þörf hans og allra manna á lífsviðurværi, er not- uð af Satan til þess að koma i huga hans löngun til þess, að nota afl sitt og yfirburði til þess að 'breyta steinum í brauð, brjóta náttúrlegt lögmál vinnunnar og, slíta sambandið milli andlits-sveit- ans og daglega brauðsins, græða án tilverknaðar. Auðveldlega gat hann þetta, auðveldlega gat hann gert brauð úr steinum, gull úr grjóti. Auðveldlega gat hann beitt hæfileikum sínum og valdi til þess að verða auðmaður, ríkari en Salomó, ríkari en Henry

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.