Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1927, Qupperneq 11

Sameiningin - 01.03.1927, Qupperneq 11
73 Dálætinu yrÖu engin takmörk sett, og frægÖ hans bærist út um allar sveitir. Hvort hégómasemin hefir fleiri felt en fégirndin, skal ósagt, en víst er þaÖ, aí5 þeirri ástríðu verða menn aS bráð unnvörpum, svo aS segja í hverri stétt og stöðu. Það er hégómagirnin, daBrið við dálæti almennings. sem veldur öllum andlitsfarfa stázzmeyj- anna, pilsvíðum -buxum piltanna. geðvonzku dutlungum kvenn- anna og innbyrðis öfund og illindum mannanna Sennilega skemt- ir enginn hlutur skrattanum jafn-mi'kið eins og hégómaskapur okkar mannanna. Honum er víst dillað, þegar viS rífumst út af hégómanum tómum; þegar við öfundum hver annan og getum hvern annan ekki réttum augum litið; þegar maður fær í hvorug- an fótinn stigiö nema með hliðsjón af því, hve vel maSur líti út í augum annara ; og þegar maður situr sig aldrei úr færi um að láta tómahljóðið í tunnu sinni hafa semi hæst. Þess'a ástríðu rak Jesús' frá sér í eitt sldfti fyrir öll. Sigur hans var svo algjör, aS aldrei framar leitaði myrkraliðið á hann úr þeirri átt. Hann vissi aldrei annað en hógværðina. Enda varð það síðar, er fáir menn lærðu að þekkja hann og skilja, að þeir elskuðu hann ekki fyrir annað meir, en það hve yndislega hógvær hann hafði verið. Um það hljóða, auk annars, ummælin fögru í FilippÍHbréfinu, þar sem viS erum ámint um að vera með sama hugarfari og Kristur Jesú, sem ekki miklaðist af því að vera í Guös mynd, heldur afklæddist henni og varð mönnum líkur og hugsaði um það eitt fram í dauða, að þjóna og hlýSa. Síðasta freistingin, sem á Jesú stríddi í eySimörkinni, var valdafýknin. Þar fær hinn illi andi því til leiðar komið, að hugur hans svífur yfir heim allan, og við honum blasir sú mynd, að hann situr sjálfur á glæstum veldisstóli og honum lúta allar heimsins þjóðir. Leið hans í þann tignarsess er greiðfær. Það var vanda- laust fyrir Krist að leggja allan heiminn undir sig og gerast glæsi- legasti höfðingi veraldar. Hann gat það með valdi. En að nota valdiS til þess, var sama sem að falla fram fyrir óvin Guðs, því með því að hafna þeim konungdómi, sem Guð hafði gefið honum, konungdæmi sannleikans og elskunnar, hefði hann hafið uppreist móti Guði og gengið í lið með þeim illu öndum, sem stríða gegn Guði. Jesús hratt freistingunni frá sér. En mennrnir hafa fallið fyrir þessari djöfullegu freistingu á öllum öldum. Mann hryllir næstum viS aö lesa mannkynssöguna, svo stór hluti hennar sem ekki er annað en frásaga þess, hvernig menn og þjó'Sir berjast um völd. Og enn þá eru þeir kaflarnir oft

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.