Sameiningin - 01.03.1927, Side 24
86
Eg veit ekki hversu skamt er aÖ landamærunum. Prestur
nokkur sagði í ræðu sinni einn sunnudag: “Einhver i þessum-
hópi verður andaöur fyrir næsta laugardag.”
“Eg trúi því ekki,” sagði einn af safnaöarmönnunum, við ann-
an, sem sat hjá honum. “Eg ætla að hafa gætur á þessu, og ef|
spáin rætist ekki fyrir laugardagskvöld, þá skal eg minna þennan
prest á lygina.”
En maðurinn, sem sat hjá honum, sagði: “Kannské það verð-
ir þú sjálfur.”
“Ó-nei,” sagði hann, “eg verð gamall maður.” En sama kvöld-
ið andaðist hann.
Frelsarinn kallar ykkur í dag. Allir mega koma. Guð rekur
aldrei nokkurn mann frá sér. Guð grandar aldrei nokkrum manni.
Þaö er maðurinn, sem fleygir sér burt, ef hann glatast. “Sálar-
morðiö’’ er sjálfsmorð, því að fyrirheitið er þetta: “Hver sem
vill, hann taki ókeypis lífsvatnið.” Hver sem vill.—
Hér er nú kostur að heyra
herrann talandi’ í náð,—
Jesús opni mitt eyra,
svo aö þvi fengi’ eg gáð,
hógvær vors bata bíður
blessaður, þessa tíö:
Annars heims er hann striður
öHum forhertum lýð.
Nú er vitunartíminn, timi miskunnarinnar. Og margir koma
nú inn í guðsríki. Komið og verið með í förinni til himins. “Sjá
nú er mjög hagkvæm tíð. Nlú er hjálpræðisdagur.”
[Lauslega þýtt, og íslenzkum versum skift fyrír ensk í þýð-
ingar stað.] G■ G.
Frá trúbocSunum.
BlöSin hafa verið að flytja undanfarandi voðafréttir frá Japan
um ægilegan jarðskjálfta, sem þar hefir gengið. AS vísu eru það
engar nýjungar að jarðskjálftar komi fyrir í Japan. Jarðskjálftar
eru þar einlægt á hverju ári, og ferst fóLk í þeim árlega; enda er fólk
mjög hrætt við þá — hræddara en við eldfjalla-gos. Og þó er enginn
hörgull á þeim, þar sem talin eru 50 óútbrunnin eldfjöll í landinu.
En jarðskjálftinn þessi líktist þeim um árið, sem kom yfir höfuðborg-
ina Tokyo og nágrenni og gerði hin ógurlegustu spellvirki og olli
miklum manndauða og hörmungum. Talið er að nú hafi farist um
þrjú þúsund manns og margar þúsundir orðið heimilislausar. Það