Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 6

Fréttablaðið - 16.03.2011, Page 6
16. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR6 sex saman í p akka ÍS L E N S K A S IA .I S M S A 4 58 61 0 4 /0 9 JAPAN, AP Sjötugri konu var bjargað úr rústum heimilis hennar í hafn- arborginni Otsuchi í Japan í gær, fjórum dögum eftir að flóðbylgja svipti húsinu af grunni síðastliðinn föstudag. Konan, sem heitir Sai Abe, var send á sjúkrahús. Hún þjáðist af ofkælingu en virtist ekki hafa hlotið lífshættuleg meiðsli. Yngri manni var einnig bjargað úr rúst- unum. Talið er að hundruðum, ef ekki þúsundum, manna hafi verið bjargað úr rústunum en líkurnar á að fleiri bjargist þykja orðnar afar litlar. Veður er að kólna og snjó- komu er spáð næstu daga á þeim slóðum sem verst urðu úti. Í nágrenni kjarnorkuversins í Fukushima var 140 þúsund manns í gær skipað að halda sig inni við og loka vel dyrum og gluggum til að forðast hættulega geislameng- un, sem barst frá verinu eftir að eldur kviknaði í einum kjarnaofna þess. Eldurinn kviknaði í kjarnaofni fjögur, sem vegna viðhalds var ekki í notkun þegar jarðskjálftinn reið yfir á föstudag. Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, kom fram í sjónvarpi í gær og sagði geislun berast frá ofninum beint út í andrúmsloftið. Þegar leið á daginn þótti ljóst að mengunin yrði ekki jafn mikil og óttast var í fyrstu. Atburðirnir í Fukushima hafa ýtt undir efasemdir um öryggi kjarnorkuvera almennt, ekki síst í Evrópu þar sem andstaða við kjarnorku hefur jafnan verið umtalsverð. Tugir þúsunda komu saman í Þýskalandi á mánudag til að krefjast þess að allri kjarnorku- vinnslu þar í landi yrði hætt. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sagðist í gær hafa ákveð- ið að allir kjarnakljúfar í Þýska- landi sem starfræktir hefðu verið í meira en tvo áratugi yrðu tíma- bundið teknir úr notkun. Þá hefur Evrópusambandið ákveðið að gera álagspróf á öllum kjarnorkuverum í aðildarríkj- unum til að ganga úr skugga um hvernig þeim myndi reiða af í náttúruhamförum. Alls eru kjarn- orkuver í ESB-ríkjum 149 talsins. Jarðskjálftinn síðastliðinn föstudag mældist 9 stig, sam- kvæmt útreikningum Banda- rísku jarðfræðimiðstöðvarinnar, en ekki 8,9 eins og fyrst var nefnt. Þar með er þetta fjórði öflugasti jarðskjálfti sem mælst hefur á jörðinni síðan 1900 og sá stærsti í sögu Japans síðan mælingar hóf- ust þar fyrir 130 árum. Mögulegt er að álíka stór skjálfti hafi orðið í Japan árið 869 þegar mikil flóð- bylgja skall á land á sömu slóðum. gudsteinn@frettabladid.is Geislamengun lak úr kjarnorkuverinu Um 140 þúsund manns þurftu að loka sig inni til að verjast hættulegri geisla- mengun sem slapp frá kjarnorkuverinu í Fukushima í gær. Evrópusambandið hefur ákveðið að gera álagspróf á öllum kjarnaofnum aðildarríkjanna. VIRÐIR RÚSTIRNAR FYRIR SÉR Kona heldur fyrir vitin meðan hún skoðar staðinn þar sem hús hennar stóð í bænum Yamada í norðvesturhluta landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP NÁÐI EKKI ÁRANGRI Alain Juppé, utan- ríkisráðherra Frakka, á fundi G8-ríkjanna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRAKKLAND, AP Alain Juppé, utan- ríkisráðherra Frakklands, gerir sér vonir um að öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna samþykki fyrir vikulokin ályktun um aðgerðir til stuðnings stjórnarandstöðunni í Líbíu. Á leiðtogafundi átta stærstu iðnríkja heims, sem haldinn var í Frakklandi í gær, fékk Juppé því ekki framgengt að loftferðabann yrði samþykkt í Líbíu. Hann tók þó fram að Frakkar hafi upphaflega viljað fara í bein- ar hernaðaraðgerðir, ekki bara loftferðabann. - gb Vilja hertar aðgerðir: Hafa leitað til öryggisráðsins Beðið fyrir Japan Beðið verður fyrir japönsku þjóðinni og þeim sem eiga um sárt að binda vegna hamfaranna þar í bændastund í Háteigskirkju á morgun fimmtudag, klukkan 18. Ritningarlestrar, bænir, tónlist og kyrrð munu einkenna bænastundina og viðstöddum gefst kostur á að kveikja á bænaljósum. JAPAN Launakostnaður jókst Heildarlaunakostnaður á hverja greidda vinnustund var 8,2-9,5% hærri á síðasta fjórðungi ársins 2010 en árið 2009. Samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofunni jókst launa- kostnaður mest í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu en minnst í bygg- ingarstarfsemi og mannvirkjagerð. HAGTÖLUR BAREIN, AP Konungurinn í Barein hefur lýst yfir þriggja mánaða neyðarástandi í landinu. Jafnframt fær yfirmaður hersins víðtæk völd til að berja niður mótmæli, sem sjía-múslimar í landinu hafa verið í forystu fyrir undanfarnar vikur. Á mánudag sendu Sádi-Arabar þúsund hermenn til Barein til að hjálpa stjórninni, sem einnig nýtur stuðnings Bandaríkjanna. Írans- stjórn hefur harðlega mótmælt íhlutun Sádi-Araba. Í Barein eru sjía-múslimar í minnihluta og telja sér mismunað af hálfu súnní-múslima, sem fara með öll völd í landinu. Hætta er á að átökin í Barein, sem er lítil eyja úti af strönd Sádi- Arabíu á Persaflóa, snúist upp í víðtækari átök sjía-múslima gegn súnníum. Íbúar Sádi-Arabíu eru að mestu súnní-múslimar en í Íran, sem er handan flóans, búa einkum sjíar. Hörð átök brutust út í Barein í gær. Hundruð mótmælenda eru sögð hafa særst, bæði af völdum barefla lögreglunnar og skotvopna hennar. Að minnsta kosti einn her- maður frá Sádi-Arabíu lést eftir að hafa orðið fyrir skoti úr byssu mót- mælanda. - gb Íranar mótmæla afskiptum Sádi-Arabíu af mótmælaólgunni í Barein: Herlög gengin í gildi í Barein MÓTMÆLENDUR Í MANAMA Hörð átök brutust út í gær í höfuðborginni Manama. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALÞINGI Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar, lagði í gær fram breytingartillögu við þingsályktun- artillögu um skipan stjórnlagaráðs, þess efnis að ráðið geti starfað til loka júlí. Í upphaflegu tillögunni er gert ráð fyrir að stjórnlagaráð skili af sér frumvarpi fyrir lok júní. Meirihluti allsherjarnefndar leggur annars til þær breytingar að Alþingi skipi stjórnlagaráð en ekki forseti þess, að fundir ráðsins verði opnir og að það setji sjálfu sér starfsreglur. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í allsherjarnefnd vilja málið frá og ítreka vilja flokksins til að taka þátt í endurskoðun stjórnarskrár- innar á vettvangi Alþingis. Þingið geti byggt þá vinnu á niðurstöðu þjóðfundar auk annarra gagna. Vigdís Hauksdóttir, Framsókn- arflokki, leggur til að stjórnlaga- nefnd, sem skipuð var til að annast söfnun og úrvinnslu gagna fyrir stjórnlagaþing, verði falið að gera tillögur um breytingar á stjórnar- skránni og skili Alþingi tillögum í frumvarpsdrögum. Loks leggja þingmenn Hreyf- ingarinnar til að ákveðið verði að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um tillögur stjórnlagaráðs áður en Alþingi fær þær til umfjöllunar. - bþs Nokkrar breytingatillögur eru gerðar við þingsályktunartillögu um stjórnlagaráð: Stjórnlagaráð geti starfað til loka júlí STJÓRNLAGANEFND Vigdís Hauksdóttir vill að nefndin geri tillögu að breyt- ingum á stjórnarskrá. INNFLYTJENDUR Innflytjendur og börn þeirra fædd á Íslandi voru 28.275 talsins um síðustu áramót, eða 8,9 prósent af íbúum í land- inu. Þetta er sama hlutfall og í upphafi árs 2010. Innflytjendum fækkaði um 478 milli ára en á móti vó fjölgun í hópi barnanna. Pólverjar eru langfjölmennast- ir, eða 9.463, og 36,8 prósent allra innflytjenda. Næstfjölmennastir eru Litháar með 5,7 prósent en 5,2 prósent inn- flytjenda fæddust á Filippseyjum. - pg Fólkið í landinu: Innflytjendur 8,9% mannafla STJÓRNSÝSLA Jafnréttisráð lýsir undrun sinni á því að Alþingi – sjálfur löggjafinn – skuli ganga gegn anda laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla við kosningu á fulltrúum í lands- kjörstjórn. Skorar ráðið á forseta Alþingis að sjá til þess að sama endurtaki sig ekki. Í febrúarlok kaus Alþingi fjóra karla og eina konu í fimm manna landskjörstjórn. Í áður- nefndum lögum er kveðið á um að þess skuli gætt að hlutfall kynja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum ríkis og sveitarfélaga sé sem jafnast. - bþs Jafnréttisráð gagnrýnir þingið: Löggjafinn fer gegn anda laga LÖGREGLUMÁL Ármann Þorvalds- son, fyrrverandi forstjóri Kaup- thing Singer&Friedlander, dótt- urfélags Kaupþings í Bretlandi hafnar því með öllu að rann- sókn efnahags- brotadeildar bresku lögregl- unnar, SFO, beinist að þeim hluta Kaup- þingssam- stæðunnar sem hann stýrði. Sem kunnugt er voru níu manns teknir til yfir- heyrslu í tengslum við málið. Sjö á Bretlandi og tveir á Íslandi. Ármann segir í yfirlýsingu til fjölmiðla að viðtal lögreglunnar við sig hafi tekið um eina og hálfa klukkustund. Engin atriði sem lögreglan hafi verið með til skoð- unar hafi snúið að sér persónu- lega og ekki ein spurning hafi snúist um ákvarðanir sem hann hafi tekið eða átt þátt í að taka. Yfirlýsingu Ármanns má finna í heild sinni á Vísi.is. Rannsókn SFO á Ármanni: Segir rannsókn ekki snúa að sér ÁRMANN ÞORVALDSSON Hefur þú notað svefnlyf? Já 40% Nei 60% SPURNING DAGSINS: Teflir þú? Segðu skoðun þína á Visir.is. KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.