Fréttablaðið - 16.03.2011, Blaðsíða 23
H A U S
MARKAÐURINN
Ú T T E K T
5MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2011
tók yfir Vestia. Þar er um að ræða
sjóð með mjög mikla fjárfestinga-
getu og mikilvægt að á grunni
hans rísi ekki blokk sem hindri
samkeppni. Við horfum líka á
sambúð hans við Landsbankann,
sem er þátttakandi í þeim sjóði.
Svo horfum við á áhrif sjóðsins
á samkeppni á fjármálamarkaði,
með Landsbankann sér við hlið.
Þá horfum við á það hvaða áhrif
samstarf Framtakssjóðsins hafi
á starfsemi lífeyrissjóða að öðru
leyti,“ segir Páll.
Forstjóri Samkeppniseftirlits-
ins bendir á að bankarnir eigi að
hafa á sínum snærum óháðan eft-
irlitsaðila til að fylgja því eftir að
unnið sé eftir skilyrðum eftirlits-
ins. Þessir starfsmenn skila reglu-
legri skýrslu til Samkeppniseftir-
litsins um gang mála sem tryggja
eiga að farið sé eftir settum skil-
yrðum.
Samkeppniseftirlitið fundar
auk þess reglulega með eftirlits-
aðilum bankanna og forstjórum
þeirra auk þess að safna sjálf upp-
lýsingum til að ganga úr skugga
um að skilyrðunum sé fylgt.
Brjóti bankarnir skilyrðin getur
Samkeppniseftirlitið beitt stjórn-
valdssektum. Slíkum úrræð-
um hefur verið beitt í sambæri-
legum tilvikum. Dæmi um það eru
brot Teymis á skilyrðum sem sett
voru vegna yfirtöku fyrirtækisins
á fjarskiptafyrirtækinu Tali árið
2008. Fyrirtækið braut skilyrði
sem sett voru fyrir yfirtökunni og
gerði Samkeppniseftirlitið húsleit
hjá Teymi. Teymi var í kjölfarinu
gert að greiða 70 milljóna króna
stjórnvaldssekt og skuldbatt sig
til að selja Tal frá sér.
KANNA EIGNARHALDIÐ
Um síðustu áramót hóf Samkeppn-
iseftirlitið að kanna stöðu um 120
fyrirtækja á mikilvægum sam-
keppnismörkuðum. Páll Gunn-
ar segir þetta viðamikla athugun
og snýr meðal annars að því að
kanna hvort eignarhald á fyrir-
tækjum sé á einhvern hátt dulið.
„Þetta er býsna viðamikið
verkefni. Við öflum upplýsinga
um stöðu fyrirtækjanna, hvar
þau standa í fjárhagslegri endur-
skipulagningu, samskipti þeirra
við bankana. Þá er reynt að varpa
ljósi á hver fari með eignarhald
á viðkomandi fyrirtækjum. Við
erum að freista þess að fá góða
yfirsýn yfir stöðu þessara mála
á mikilvægum samkeppnismörk-
uðum, hvernig þau eru stödd,
hvort þau þurfa á hjálp að halda
eða ekki og hver eru tengsl þeirra
við bankana,“ segir Páll Gunnar.
Páll segir of snemmt að segja
til um niðurstöður athugunar-
innar, en niðurstöðu er að vænta
síðar á árinu.
MARGIR KVARTA
Samkeppniseftirlitinu berast um
85 til 100 óformlegar ábending-
ar um samkeppnismál almennt
á hverju ári auk fjölda erinda og
kvartana frá forsvarsmönnum fyr-
irtækja sem telja keppinauta í eigu
bankanna brjóta á sér.
Páll Gunnar segir allar ábend-
ingar vel þegnar og þær séu allar
skoðaðar. Þegar tilefni þykir til
er brugðist við með athugunum,
stundum með stjórnvaldssektum
líkt og í tilviki Teymis. Í öðrum
tilvikum leiðir rannsókn í ljós að
ekki sé ástæða til að aðhafast.
„Við erum nú með til skoðunar
um 15 athuganir sem varða ábend-
ingar og kvartanir sem varða
eignarhald banka á atvinnufyrir-
tækjum. Í sumum tilvikum kann
að vera ástæða til íhlutunar, en í
öðrum reynast ekki forsendur til
þess. Þessar kvartanir lýsa hins
vegar vel stöðunni, mörg fyrirtæki
telja hagsmunum sínum ógnað af
bönkunum. Það ber að taka þessar
ábendingar alvarlega, en það þarf
að skoða þær vandlega,“ segir for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins og
bendir á að fjallað hafi verið ítar-
lega um þessa sambúð banka og
fyrirtækja í umræðuskjali í lok
árs 2009.
Páll Gunnar og bendir á að
í mörgum tilvikum, ekki síst
skömmu eftir hrunið hafi mörg
fyrirtækið talið að beita ætti sam-
keppnislögum til að passa upp á
að keppinautar þeirra á markaði
fengju ekki of miklar afskriftir af
skuldbindingum sínum hjá bönk-
unum. Rökin voru þau að skulda-
aðlögun gæti skekkt samkeppnis-
stöðuna.
Samkeppniseftirlitið var hins
vegar á öðru máli. „Við töldum
ekki að það ætti að beita sam-
keppnislögum á þann hátt. Þvert
á móti er það mikilvægt að taka
til. Það er mikilvægt að það eigi
sér stað hreinsun svo fyrirtæki
eigi sér lífsvon og að hjól atvinnu-
lífsins fari að snúast aftur. En
það er engum til góða að fyrir-
tæki séu rekin án þess að þau eigi
sér rekstrarforsendur,“ segir Páll
Gunnar og áréttar mikilvægi þess
að hlusta á sjónarmið neytenda
ekki síður en eigenda fyrirtækja
á samkeppnismarkaði.
„Samkeppniseftirlitið á að stuðla
að samkeppni á markaði og vernda
hagsmuni neytenda umfram hag
einstakra fyrirtækja. Það er leið-
arstef í okkar starfi. Fyrirtæki
koma og fara. Það er ekki hlut-
verk Samkeppniseftirlitsins að
halda í höndina á þeim öllum og
passa að ekkert komi fyrir. Með
aðgerðum okkar verðum við hins
vegar oft fyrirtækjum að liði, ekki
síst smærri fyrirtækjum sem eru
að hefja samkeppni eða reyna að
vaxa við hlið stærri fyrirtækja,“
segir Páll Gunnar.
Fjöldi Ákvörðun
1. Samruni Íslandsbanka (ÍSB) og Icelandair Group (ákv. nr. 33/2009)
2. Yfirtaka Glitnis banka á Íslandsbanka (ákv. nr. 48/2009)
3. Samruni Kaupþings banka og Arion banka (ákv. nr. 49/2009)
4. Yfirtaka Arion banka á Högum (1998 ehf.) (ákv. nr. 6/2010)
5. Yfirtaka Íslandsbanka á B&L og Ingvari Helgasyni (ákv. nr. 8/2010)
6. Yfirtaka Arion, NBI, ÍSB, Haf funding og Glitnis á Reitum fasteignafélagi (áður
Landic Properties) (ákv. nr. 15/2010)
7. Yfirtaka Regins á Fasteignafélagi Íslands (ákv. nr. 19/2010)
8. Yfirtaka Arion banka á Þyrpingu (ákv. nr. 21/2010)
9. Yfirtaka Íslandsbanka á Eik Properties (ákv. nr. 22/2010)
10. Yfirtaka Arion banka á B.M. Vallá (ákv. nr. 31/2010)
11. Yfirtaka Byrs sparisjóðs á Byr hf. (ákv. nr. 36/2010)
12. Kaup Framtakssjóðs Íslands á Eignarhaldsfélaginu Vestia (ákv. nr. 1/2011)
13. Yfirtaka NBI á Björgun (5/2011)
14. Yfirtaka Arion banka á eignum þrotabús Sigurplasts (ákv. nr. 7/2011)
15. Yfirtaka Íslandsbanka og Glitnis á Bláfugli (ákv. nr. 8/2011)
* 14. mars 2011
Í byrjun febrúar á síðasta ári birti
Fréttablaðið gróft yfirlit yfir eign-
arhald á 45 stærstu fyrirtækjum
landsins í úttekt í Markaðnum.
Á þeim þrettán mánuðum sem
liðnir eru frá því úttektin birt-
ist hafa átján þeirra ýmist skipt
um hendur eða eru á mismunandi
stigum söluferlis. Þetta jafngildir
því að slétt fjörutíu prósent fyrir-
tækja hafi skipt um hendur.
Á meðal fyrirtækjanna átján
eru sex sparisjóðir sem eru í fjár-
hagslegri endurskipulagningu og
hefur Bankasýsla ríkisins eign-
ast misstóran eignarhlut í sumum
þeirra. Þá eru á meðal fyrirtækj-
anna tryggingafélagið Sjóvá, sem
unnið er að því að selja til fagfjár-
festasjóðs á vegum Stefnis, dótt-
urfélags Arion banka, og Hagar,
sem hópur fjárfesta samdi á dög-
unum um að kaupa rúman þriðj-
ungshlut í. Þá hefur sjóður Auðar
Capital keypt fjarskiptafyrirtæk-
ið Tal og lífeyrissjóðirnir eignast
beint og óbeint meirihluta í Ice-
landair Group.
Á þeim þrettán mánuðum sem
liðnir eru frá því úttektin birtist
hafa átján fyrirtækjanna ýmist
skipt um hendur eða eru á mis-
munandi stigum söluferlis. Þetta
jafngildir því að eigendaskipti
eigi sér stað hjá um fjörutíu pró-
sentum fyrirtækjanna.
40 prósent fyrirtækja
til nýrra eigenda
„Almennt held ég að bankarnir vilji ekki eignast
hlut í fyrirtækjum og þeir eru ekki góðir eigend-
ur, að mínu mati,“ segir Kristín Pétursdóttir, for-
stjóri Auðar Capital. Hún hefur gagnrýnt eignar-
hald banka í fyrirtækjum í fjárhagsvanda eftir
efnahagshrunið og vill hraða fjárhagslegri endur-
skipulagningu og aðkomu fjárfesta að þeim.
Kristín telur eignarhald banka á fyrirtækjum í
rekstri geta skekkt samkeppnisstöðu atvinnulífs-
ins. „Ég tel að bankarnir séu að reyna að vinna eins
hratt og vel og mögulegt er úr flóknum málum.
En það gengur því miður allt of hægt. Það stend-
ur kannski ekki bara á bönkunum að hraða fjár-
hagslegri endurskipulagningu fyrirtækja. Óvissa
er um lögmæti gengistryggðra lána fyrirtækja og
eigendur þeirra fyrirtækja sem eigi við vanda að
etja eru ekki endilega að ýta á lausn. Sumir eigend-
ur fyrirtækja í vanda vilja ekki semja um skuldir
sínar núna þar sem þeir vonast til að geta fengið
hagstæðari lausn mála sinna en núverandi úrræði
bjóða upp á,“ segir hún.
Eigendur fyrirtækja bíða betri tíðar
Forstjóri Auðar Capital vill að bankarnir hraði því að
koma fyrirtækjum í hendur einkaaðilum.
KRISTÍN PÉTURSDÓTTIR Eigendur fyrirtækja í vanda eygja
von um að þau fái hagstæðari úrlausn mála sinna en núverandi
úrræði bjóða upp á ef gengisdómar falla þeim í vil, að sögn
forstjóra Auðar Capital. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Frá hruni hefur Samkeppniseftirlitið haft til umfjöllunar allmörg mál
er varða yfirtökur banka á atvinnufyrirtækjum. Það hefur tekið 21
ákvörðun um mál þar sem ítarleg skilyrði hafa verið sett fyrir yfirtök-
um banka og Framtakssjóðsins (FSÍ) á atvinnufyrirtækjum. Þar undir
eru jafnframt yfirtökur skilanefnda gömlu bankanna á þeim nýju. Tæp-
lega tíu sambærileg mál eru nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Af þessari 21 ákvörðun eru fimmtán undir virku eftirliti og bönkun-
um sett ákveðin skilyrði í þeim málum. Í sex tilvikum eru yfirráð við-
komandi banka á atvinnufyrirtæki ekki lengur til staðar. Þar á meðal
eru yfirtökur Landsbankans (NBI) á þremur fyrirtækjum sem fóru
yfir til Framtakssjóðsins síðastliðið haust.
Málin undir eftirliti
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S í m i : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali
BREGÐAST VIÐ KVÖRTUNUM Samkeppniseftirlitinu berast í kringum hundrað kvartanir
á ári frá forsvarsmönnum fyrirtækja sem telja að fyrirtæki í eigu bankanna séu að brjóta á
sér. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Á K V A R Ð A N I R U N D I R V I R K U E F T I R L I T I
S A M K E P P N I S E F T I R L I T S I N S *