Fréttablaðið - 16.03.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 16.03.2011, Blaðsíða 34
16. mars 2011 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is MARGRÉT KARA STURLUDÓTTIR hjá KR missir af tveim- ur fyrstu leikjum KR og Keflavíkur í undanúrslitum úrslitakeppni kvennakörfunnar eftir að hún var dæmd í tveggja leikja bann í gær fyrir að slá Maríu Lind Sigurðardóttur, leikmann Hauka. Sérframleiðum bursta eftir þínum þörfum. • •B U R S TA G E R Ð I N ÍS L E N S K U R I Ð N A Ð U R Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0030 · www.burstagerdin.is Barnavettlingar. 3 pör í pakka. Kuldagalli með 5.000 mm vatnsheldni og góðri öndun. Styrkingar á rassi og hnjám. Litir: Svartur, blár, bleikur. Stærðir: 80-120. Flísbuxur. Stærðir: 80-160. FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson, þjálfari karlalandsliðsins, tilkynnti í gær hópinn sinn fyrir leik á móti Kýpur í undankeppni EM sem fer fram á Kýpur 26. mars næstkomandi. Ísland hefur tapað fyrstu þremur leikj- um sínum í undan- keppninni og er á botninum í riðlin- um, einu stigi á eftir Kýpur. Ól a fu r velu r hvorki Eið Smára Guðjohnsen né Veigar Pál Gunnarsson í liðið en þetta er annar landsleikurinn í röð þar sem þeir eru ekki valdir. Ólafur hefur líka endurnýjað markvarðahóp- inn en Árni Gautur Ara- son er ekki valinn að þessu sinni. Í stað hans eru Stefán Logi Magnússon og Ingvar Þór Kale báðir í hópnum. Tíu af 22 leikmönnum eru gjaldgengir í 21 árs liðið sem er að spila vináttulandsleiki á sama tíma. Einhverjir þeirra gætu verið með á móti Englending- um en sá leikur fer fram tveimur dögum eftir leik- inn á Kýpur. Allan hópinn má finna á Vísir.is. - óój Landsliðshópur Ólafs Jóhannessonar á móti Kýpur: Enginn Eiður Smári og enginn Veigar Páll FÓTBOLTI Guðjón Baldvinsson er búinn að fá sig lausan frá sænska liðinu GAIS og skrifaði í gær undir þriggja ára samning við KR. „Þetta er svakalegur léttir enda búið að vera óvissuástand í langan tíma. Það er mjög góð tilfinning að þetta sé búið. Ég var ekki spennt- ur fyrir því að fara aftur á láni. Ég er með fjölskyldu og vil fá smá festu í þetta núna,“ sagði Guðjón sem skoraði 10 mörk í 13 leikjum með KR í fyrra. „Ég er farinn að einbeita mér að öðru núna en að komast út í atvinnumennsku og er ekkert að fara á taugum þótt ekkert gerist. Ég ætla að bara að einbeita mér að því að standa mig hjá KR og reyna að vinna einhverjar dollur. Ég er með fjölskyldu og okkur líður vel í KR,“ segir Guðjón. „Ég sagði ein- hvern tímann þegar ég kom fyrst út í KR að mig langaði að vinna Íslandsmeistaratitilinn með þeim og það er markmið sem ég á eftir að ná. Ég stefni á það að klára það núna,“ sagði Guðjón að lokum. - óój Guðjón Baldvinsson laus frá GAIS og búinn að semja til þriggja ára við KR: Ætlar að vinna dollur með KR GUÐJÓN BALDVINSSON Í leik með KR í bikarúrslitunum í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Javier Hernández hjá Manchester United og Goran Pandev hjá Inter Milan skutu liðum sínum áfram í Meistaradeildinni í gærkvöldi. Hernán- dez skoraði tvennu í 2-1 sigri United á Marseille og Pandev tryggði Inter 3-2 sigur tveimur mínútum fyrir leikslok eftir að Evrópumeistaranir gátu þakk- að að ganga til leikhlés aðeins 1-2 undir. Manchester United hafði leikið 24 heimaleiki í röð án taps og hafði heldur ekki tapað fyrir frönsku liði á Old Trafford. Það breyttist heldur ekki þótt að United hafði spilað án beggja aðalmiðvarða sinna og misst báða bakverði sína meidda af velli. Javier Hernández fékk stóra tækifærið hjá Alex Ferguson og var búinn að koma Manchester United í 1-0 eftir fimm mínútur. Markið kom eftir undirbún- ing Ryans Giggs og sendingu frá Wayne Rooney en Hernández þurfti bara að setja boltann í tómt mark. Marseille fékk fín færi áður en Hernández bætti við öðru marki á 75. mínútu þegar hann var aftur réttur maður á réttum stað í markteignum og skor- aði eftir flotta sendingu frá Ryan Giggs. Marseille fékk síðan góða hjálp á 82. mínútu þegar Wes Brown varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir hornspyrnu frá Matthieu Valbuena. Þetta voru því taugatrekkjandi lokamínútur fyrir United-menn því Frakkarnir þurftu bara að skora eitt mark. Manchester United liðið hélt hinsvegar út og tryggði sér sigurinn. Inter Milan komst áfram í átta liða úrslit Meist- aradeildarinnar eftir ótrúlegan 3-2 sigur á Bayern München á Allianz Arena í München í kvöld. Bayern fékk fjölda færa til þess að gulltryggja sigur sinn á Evrópumeisturum en Inter-menn gáfust ekki upp og tryggðu sér 3-2 sigur með því að skora tvisvar í seinni hálfleiknum. Samuel Eto‘o kom Inter í 1-0 eftir aðeins rúmar þrjár mínútur en Bayern svaraði með mörkum frá Mario Gomez og Thomas Müller. Mario Gomez skoraði eftir mistök Júlio César í marki Inter en Júlio César átti eftir að bæta fyrir þau mistök með frábærri markvörslu. Inter-menn gáfustu ekki upp og á meðan Bayern nýtti ekki færin sín þá var enn möguleiki. Hollend- ingurinn Wesley Sneijder náði að jafna leikinn með þrumuskoti á 63. mínútu eftir að hafa fengið send- ingu frá Samuel Eto‘o. Það var síðan Goran Pandev sem kom Inter í 3-2 á 88. mínútu með flottu skoti eftir frábæran undirbúning frá Samuel Eto‘o sem átti þátt í öllum þremur mörkum Inter. Það virtist fátt benda til þess að Inter væri að fara áfram eftir að liðið slapp inn í hálfleik, 1-2 undir, en í seinni hálfleiknum tókst liðinu að vinna sig inn í leikinn og skora mörkin tvö sem dugðu til að tryggja liðinu sætið í átta liða úrslitunum. ooj@frettabladid.is HERNÁNDEZ VAR HETJAN Manchester United og Evrópumeistarar Inter Milan tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar eftir dramatíska seinni leiki í gærkvöldi. Inter kom til baka eftir að útlitið var orðið mjög svart í München. TVENNA FRÁ CHICHARITO Javier Hernández fagnar hér öðru marka sinna á Old Trafford í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.