Fréttablaðið - 16.03.2011, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 16. mars 2011 3
„Við munum kynnast búskapar-
háttum fólks í þessu harðbýla
landi, skoða sögufrægar hallir og
upplifa menningar- og trúararf
Tíbeta í Lamaklaustrunum. Auk
þess ferðumst við um tignarlegt
landslag og ætlum að komast að
rótum Everest,“ segir Inga Ragn-
arsdóttir, fararstjóri Bændaferða
til Tíbet. Hún kynntist daglegu lífi
í Vestur-Tíbet fyrir þrjátíu árum
er hún dvaldi þar í nokkrar vikur.
Var meira að segja leidd fyrir
trúarleiðtogann Dalai Lama sem
af tilviljun var í heimsókn í höf-
uðborginni Lhasa þegar hún steig
fyrst fæti niður þar.
Inga segir ferðina til Tíbet nú
taka þrjá daga. Komið verði til
Tíbet 31. maí og lent í höfuðborg-
inni Lhasa, sem liggi í yfir 3.600
metra hæð. „Við byrjum á að taka
því rólega til að venjast loftslag-
inu,“ lýsir hún og segir dagana
sem í hönd fara notaða til skoð-
unarferða. „Byggingarstíll Tíbet
í borginni Gyantse er meðal þess
sem við sjáum og í teppaverk-
smiðju kynnum við okkur hand-
verk Tíbeta. Í lokin verður hald-
ið þvert yfir fjallgarðana til Kína
með hinni frægu járnbraut sem
kölluð hefur verið „Himnalestin“
og enginn trúði að hægt væri að
leggja. Stórbrotin leið sem áður
var ekki talin fær nema fuglinum
fljúgandi. Þremur síðustu dögun-
um verður varið í Kína. Þar verð-
ur farið í nokkra fegurstu garða
landsins.“ Nánari upplýsingar eru
á www.baendaferdir.is
gun@frettabladid.is
Trú, líf og tignarlegt land
Ein umfangsmesta hópferð Íslendinga til Tíbet er á döfinni hjá Bændaferðum frá 28. maí til 12. júní.
Tíbet er kallað „þak veraldar” því þar eru hæstu fjallgarðar í heimi. Fararstjóri er Inga Ragnarsdóttir.
Bænafánar og bænasteinn með stúpum
á bak við sem eru reistar á heilögum
stöðum og eru búddískt tákn.
Tikse Gompa, klaustrin eru oft eins og
heil þorp.
Inga kynntist Tíbet fyrst fyrir þrjátíu árum. Þessi mynd af henni með fyrrverandi hús-
móður sinni, Ama, er tekin fyrir tveimur árum er hún var þar í heimsókn.
í beinu flugi 21. - 25. apríl
Tallinn Eistlandi
Eistland og Lettland
- Lifið heil
www.lyfja.is
Komdu
í kvöld
Láttu það nú eftir þér að dekra svolítið við þig!
50% afsláttur
Maybelline Falsies
maskarinn
20% afsláttur
All Colors
20% afsláttur
20% afsláttur
Vottaðar
lífrænar húðvörur
20% afsláttur
Hand- og fótakrem
20% afsláttur
20% afsláttur
20% afsláttur
Fótavörurnar vinsælu
20% afsláttur
Krydd í kynlífið
20% afsláttur