Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 2

Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 2
158 hlusta á mig, — myndi fæla ykkur. En nú sé eg, að það hefir ekki verið.. Enda skal eg fullvissa ykkur um það, að það er fjarri mér, að vilja gera út af við ykkur. Vildi miklu heldur, að mál mitt hefði áhrif í hina áttina. Og ef þið sitjið hjá mér þolinmóðir ofur-litla stund, þótt erfitt sé í þessum mikla hita, — skal reyna að verða ekki fram úr öllu hófi langorður, — þá vona eg að þið komist að raun um það. Eg stend hér undir ljósi. pað minnir á Ijósið að ofan, sem mig langar til þess að standa undir og vera ávalt í, og fái að varpa ögn af birtu sinni á okkur þessa stund hér í kirkjunni. Eg lít í anda Pál postula á Miðjarðarhafinú, á sigling meðfram suðurströnd Kríteyjar fyrir hægum byr. Alt í einu sést bliku draga upp í norð-austri. Og eftir litla stund er skollið á óveður, svo kallaður Evrakvíló, ógurlegur Öldu- æsir. Æðandi, ógnandi vinduf. Ólgandi, hamstola haf, sem hótar að færa far og farþega alla í kaf. Mannlegur máttur má sín nú lítið. Skipið hrekur. Og hættan suð- urundan ægileg, sem öllum sjómönnum stóð af ógn hin mesta: Syrtan, sandrifin, sandbleytan, kviksyndið, botn- laust vítið. Óveðrinu heldur áfram marga daga. Hræðilegir, sól- arlausir dagar. Allir æðrast, nema Páll og þeir, sem með honum treysta Drotni. Hann er með. Hann hefir ekki yfirgefið þá. Evrakvíló tók hann ekki á burt. Ekkert er því að óttast. pótt farið farist, bjargast þó fárþegar allir. petta er Páli birt. Harin treystir orði Drottins. Enda verður honum að því. Ölduæsirinn þessi á Miðjarðarhafinu, sem postulirin Páll var úti í, rtiinnir mig á óveðrið voðalega, sem skall á fyrir fimm árum, ölduæsirinn ógurlegasta, sem nokkurn tíma hefir ætt yfir heiminn, heimsstríðið ægilega, nýafstaðna. Nýafstaðna, segi eg. Er það úti? Já, friðarsamn- ingar voru undirritaðir í gær. Og Guði sé lof fyrir það. En—er stormurinn allur úti, óveðrinu slotað, er orðið logn? Er ekki ólgan enn í hafinu, brimið enn við strendurnar, ókyrðin enn eftir óveðrið? Og er ekki eins og gnýhljóð að- dynjanda stormviðris, æst upp af heimsstríðinu, heyrist í loftinu ? En Páll postuli í storminu er mér ímynd safnaðar Drottins í heiminum, þegar heimsstríðið skall á. pað virtist að koma eins og skrugga úr heiðskíru lofti. Rétt áður virtist gengi heimsins vera hið glæsilegasta.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.