Sameiningin - 01.08.1919, Blaðsíða 30
186
(1. Kor. 15, 35-49). (7). Hvernig verða kjör útvaldra í eilífð-
inni? peir munu þjóna Guði í eilífri dýrð og sælu, frelsaðir frá
þrengingum og öllu illu, fyrir trúna á Jesúm Krist (Opb. 9,
9-17). (8). Að hvaða gagni kemur það oss að vita þetta? Vonin
um eilíft líf er dýrmætasta gjöfin, sem vér getum eignast í
þessu lífi. Hún huggar oss í andstreyminu og gefur oss styrk
til að berjast hinni góðu baráttu (2. Kor. 4, 14 — 5, 10; 1. Pét.
1, 3-5; Gal. 6, 9).
Verkefni. 1. Ódauðleika-vonin í gamla testamentinu. 2.
Kenning Krists um annað líf. 3. Kenning Páls um upprisuna.
4. Myndir af öðru lífi, í Opinberunarbókinni.
XII. LEXIA. — 21. SEPTEMBER.
Heilög ritning.—Sálm. 19, 8-15, 2. Tim. 3, 14-17.
Minnistexti: pitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi
mínum.—Sálm. 119, 105.
Umræðuefni: Heilög ritning, innblásin af Guði. Til hlið^
sjónar: Sálm. 119, 9-16. 97. 165; Post. 17, 10-12; Heb. 1, 1. 2;
Matt. 4, 1-11; Lúk. 4, 16-22; Jóh. 5, 39-47. — Nú höfum vér í
tvo ársfjórðunga haft yfirlit yfir meginatriði kristinnar trúar.
Síðasta lexían í þeim flokki liggur nú fyrir oss, og er um þá
uppsprettuna, sem allur sannleikur kristindómsins er ausinn
úr — heilaga ritningu. Og við þá lindina eigum vér að halda
áfram að svala andlegum þorsta vorum, svo lengi sem vér lif-
um. (1). Úr hvaða bók höfum vér textann í hverri sd.skóla-
lexíu? Úr heilagri ritning. (2). Hvað er heilög ritning? Bók-
in, sem kölluð er biblían, það er að segja, helgibækur gamla og
nýja testamentisins. (3). Hví hefir sú bók svo stórt gildi fyrir
kristna menn? Af því hún er innblásið orð Drottins (Sálm. 19,
8-15; Sálm. 119; 2. Tim. 3, 16). (4). Hvað þýðir það, að ritning-
in sé innblásin? Guð lét anda sinn koma yfir þjóna sína á tíð
gamla og nýja testamentisins, og birti þeim sáluhjálplegan
sannleik, sem boðast átti öllum mönnum. Öll ritningin flytur
þann sannleika, frá ýmsu sjónarmiði og í ýmsum myndum, en
dýrlegastur er hann í kenningum, persónu og lífi Jesú Krists,
sem er geisli Guðs dýrðar og ímynd hans veru (Heb. 1, 1. 2;
Gal. 1, 11. 12; 1. pess. 2, 13; 1. Pét. 1, 10-12). (5). Hver er til-
gangur þessarar opinberunar? Að sýna oss, hvernig vér eigum
að frelsast fyrir náð Drottins (Jak. 1, 18) ; tilbiðja hann í anda
og sannleika (Sálm. 119, 62-64); leita hjá honum huggunar
(Sálm. 19, 8; Lúk. 4, 18); og lifa eftir vilja hans (Sálm. 119,
12-15). (6). Hvert er efni hennar? Tvent: lögmál og fagnað-
arerindi. Lögmálið er opinberaður vilji Drottins um það, hyern-
ig vér eigum að breyta. pað er strangt og heilagt, og boðar
vanþóknun og þunga refsing öllum, sem þverskallast. Fagnað-
arerindið er opinberuð náð Drottins í Jesú Kristi. pað er blítt