Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.08.1919, Qupperneq 8

Sameiningin - 01.08.1919, Qupperneq 8
164 svo að flokkar, sem áður börðust hvor á móti öðrum, létu ágreiningsmál sín víkja og tóku höndum saman, — þá hefðu úrslit orðið önnur, — um engan sigur orðið að ræða. Hér hefir nú verið gefin fyrirmynd að breyta eftir. Á hana bendir Drottinn oss. Hún er letruð svo skýrt. Stíll- inn er svo stór, að vér getum lesið, þótt á hlaupum séum. En hvað vill hann að vér lærum? Og hvað þurfum vér að læra? Að líta stórt á sjálfa oss og miklast af því, hve miklir menn vér séum og hvílíkan drengskap, dáð og dug vér höfum sýnt ? Að læra að finna til sjálfra vor? Að finna til þess að vér erum eiginlega meiri en aðrir? Að gáfum og öllu atgerfi öllum fremri. Nei, eg held vér þurfum ekki að læra þetta. Hygg, að vér kunnum það eins vel og pjóðverjar.*) En það, sem Drottinn vill vekja oss, sem kristnir erum og tilheyrum kirkju hans og játum að málefni hans sé vort, til að sjá og finna til, er þetta, að í verki hans, sem hann er að vinna að í heiminum og Drottinn vor Jesús Kristur fórnaði sér fyrir, hefir kallað oss til þess að vinna ~að með sér, er miklu fremur um líf eða dauða að ræða. pað er mesta mál heimsins. par er um mesta verkið í heim- inum að ræða. Og þar ætti þá að sjást hjá oss, kristnu fólki, mestur áhuginn og mesta fórnfýsin. Er það svo ? pegar vér berum saman áhugann og fórn- fýsina, sem kom í ljós í sambandi við stríðið, við áhugann og fórnfýsina, sem vér sýnum í sambandi við kristindóms- mál vor og kirkju, — er það þá svo? Kemur fram meiri áhugi og meiri fórnfýsi hér, af því um meira mál er að ræða? Eða er jafnt um það? Eða er áhuginn og fórnfýsin minni ? Oss furðar á, hve seint gengur. Oss furðar á, hve lítill hefir verið sigurinn í öllu starfinu og stríðinu. Oss furðar á, að kristindómslíf vort skuli ekki vera með meiri blóma. Er nokkuð að furða sig á því? Ef menn hefðu ekki viljað gefa sig fram, þegar á þá var kallað til stríðsins, en þózt hafa nóg að hugsa um og að gera við sín eigin hversdags verk og ekki hafa tóm til að sinna slíku, — og ef menn hefðu ekki viljað gefa nema hið allra minsta og ekki leggja neitt á sig, þegar á þá var skorað að hjálpa, því að þeir hefðu í nóg horn að líta heima fyrir og nóg að brúka peninga sína til, þó þeir færu ekki að fleygja þeim í stríðið, — hver hefði þá árangurinn orðið? l) Bg minnist í þessu sambandi þess, hvernig- talaö er um “hina Bláklæddu” i ferSasögu “hins gáfaSasta Vestur-lslendings”!

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.