Sameiningin - 01.08.1919, Side 31
187
og huggunarríkt, og boðar frelsun öllum, sem iðrast og trúa
(Sálm. 19, 12. 13; 5. Mós. 27, 26; 2. Mós. 20, 5; Heb. 4, 12; Lúk.
4, 18. 21; 1. Tim. 1, 15). (7). Hvað er æðst og dýrmætast í orði
Guðs? Opinberun Jesú Krists, frelsara vors. í honum opin-
beraðist Guð sjálfur í mannlegri mynd (Jóh. 1, 1-14), og megin-
mál ritningarinnar alt er um hann, þegar vel er að gáð (Jóh. 1,
46; Róm. 1, 1-5). (18). Hverjir eru eiginleikar orðsins og
ágæti? pað er lýtalaust, áreiðanlegt, satt og hreint og óhagg-
anlegt; það huggar, hressir, upplýsir og leiðbeinir; varar oss
við syndinni og vísar oss á veg lífsins; veitir oss hjálp í freist-
ingum, helgar og styrkir oss til alls, sem gott er (Sálm. 19,
8-15; Sálm. 119, 8. 65. 105; 2. Tim. 3, 15-17). (19). Hvernig eig-
um vér að nota orðið? Vér eigum að lesa það og íhuga á hverj-
um degi (Sálm. 1, 2), leita Drottins sjálfs í orði hans, og læra
af honum dýrmæta lærdóma (Sálm. 119, 9-16), geyma sannleik
þess í göfugu og góðu hjarta og bera ávöxt með stöðuglyndi
(Lúk. 8, 15). Vér megum ekki lesa orðið með sjálfsþótta, eins
og vér höfum einkis að iðrast og ekkert að læra (Jóh. 5, 39-47) ;
heldur í auðmýkt og sannleiksþrá (Post. 17, 1-12), og með hjart-
anlegri bæn til Guðs um leiðbeining. Annars kemur orð hans
ekki að tilætluðum notum í lífi voru.
Verkefni. 1. Hvernig flokka skuli bækur gamla og nýja
testamentisins eftir efni. 2. Orð Guðs og prédikunin. 3. Orð
Guðs og tilbeiðsla í einrúmi.
XIII. LEXÍA. — 28. SEPTEMBER.
Jesús, frelsari vor og konungur. Yfirlit. Les: Matt. 21,
1-9. 15, 16.
Minnistexti: Hósanna Davíðs syni! Blessaður sé sá, sem
kemur í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!
I. 1. Hvað er kirkjan? 2. Hvert er starf hennar? 3. Hvað
vill Drottinn, að hún gjöri fyrir oss? : 4. Hvaða skyldur hvíla á
oss gagnvart kirkjunni? 5. Hvaða gagn eigum vér að hafa af
kirkjusókn?
II. 1. Hvað eru sakramentin ? 2. Hvernig 6ru þau frá-
brugðin öðrum kirkjusiðum? 3. Hvað kendi Jesús um skírnina?
4. Hvað gjörði hann sjálfur, oss til eftirdæmis? 5. Hvað er
þá skírnin, og hvað merkir hún? 6. Hvað veitir Guð oss í skírn-
inni; og hvaða skuldbinding felst í henni? 7. Hvers vegna telj-
um vér rétt að skíra ungbörnin?
III. 1. Hvað kendi Jesús um kvöldmáltíðina? 2. Hvað er
þá kvöldmáltíðin og hvaða blessun veitir hún oss? 3. Hvaða
skilning leggur kirkja vor í orðin: “petta er líkami minn” og
“petta er blóð mitt”? 4. Hverjir mega vera til altaris?
IV. 1. Hvernig eiga kristnir menn að lifa saman? 2. Hvað
eru samúðar-öflin og einkennin, sem lýsa sér í kristilegu sam-