Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1922, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.11.1922, Blaðsíða 11
331 hefir þó ýmisleg einkenni snildar hans. Hefir hann látiö í veSri vaka, aö aSalatriSin sé sannsögulegir viöburöir úr æfisögu sjálfs sín. , Þaö er ekki einleikiö, hversu söguskáldskap yngri rithöf- unda íslenzkra, svipar til klassisku höfundanna rússnesku frá næstliöinni öld — sbr. Gunnar Gunnarsson. Bókin um Veginn, eftir Lao-tse, — Jak. Jóh. Smári og Yngvi Jóhannesson íslenzkuöu. Þýöingin er þýðing á þýöingu, og fár veit, hvort stillir við frummáliö. Ólík er þessi þýðing ensku þýðingunni, eftir Legge prest. — Spekingurinn Lao-tse var uppi meö Kínverjum á sjöttu öld f. Kr. og vita menn fátt um æfi hans. Bók þessi geymir spakmæli hans um margskon- ar sundurlaust efni, og eru flest næsta dularfull. Undur fögur eru mörg þau spakmæli, sem við Lao-tse eru kend, en þó jafn- ast þau ekki við spakmælin í gamla testamentinu, sem kend eru viö Salomó. Barnasögur og smákvœði, eftir Hallgr. Jónsson. — Sög- urnar eru flestar fallegar og viö hæfi barna. íslenzkar bók- mentir hafa verið fremur fátækar aö því efni. sem börnum hæf- ir. Þakka skal því hverja tilraun til að bæta úr þvi. En kvæðin eru því miður, ekki við barna hæfi, og satt að segja, flest þeirra, alls óhæfileg til allra hluta. Mlerkileg er sú ástriða manna, að óprýða nærri alla góða hluti með ljóða-leirburöi. MóðurmáliS, leiðsögn í lestri, eftir Steingr. Arason. — Hér eru skýrðar nýrri aöferðir við lestrarkenslu, sem nú tíðkast í skólum víða um lönd. En ekkert kemur þetta íslenzku fremur við en öðrum tungumálum. MunkafjarSarklaustur, sagnir frá Lapplandi. eftir: J. E. Friis. Höfundurinn er nafnkunnur norskur háskólaken'nari, allra manna fróöastur um tungu og sögu Finna og Lappa. Hefir hann meö mikilli fyrirhöfn og ferðalagi, safnaö þessum sögum um einsetumenn og munka á 16. öld, þar langt út í ís- höfum; eru það einkar skemtileg æfintýri. Sextíu Lcikir, fyrir heimili, skóla og leikvöll. Safnaö og samið hefir Steingrímur Arason. Þægilegt kver og notliæft. Mættu hœði yngri og eldri gjarnan leggja meiri rækt við leiki

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.