Sameiningin - 01.11.1922, Blaðsíða 15
335
Hvaðanæfa.
Nýtt tímarit hóf göngu sína í septembermánuöi síSastliön-
um, er nefnist “T'he Mjinister’s Monthly”. Skrifstofa timarits-
ins er í Chicago, en þaö er gefið út í Grand Rapids, Michigan.
Tímaritið er sent ókeypis 50,000 prestum hér í landi, og til þess
er þvi ætlast, að útgáfan beri sig aðallega á auglýsingum og
styrk frá einstaklingum, er af áhuga fyrir fyrirtækinu leggja því
lið. Hvernig þetta ber sig, verður fróðlegt að vita. Tíma-
ritiö er óháð öllum deildum kirkjunnar, en það er tekiö fram,
að það byggi á trúargrundvellij hinnar postullegu trúarjátning-
ar. Stefnan er því íhaldssöm, og að dæma eftir því, sem út er
komið, virðist það vaka fyrir, að uppbyggja sögulegan kristin-
dóm. Ritið er prentað á lélegan pappír, og skemmir það rnjög
útlit þess.
Verið er að stofna í Chicago lífsábyrgðarfélag, er nefnist:
National Temperance Life Insurance Company. Ætlar félag-
ið að selja þeim einum lífsábyrgð, sem algerðir bindindismenn
eru, og ætlar með því móti, að lækka iðgjöld frá því, sem al-
ment tíðkast. Enginn efi er á þvi, að félag- sem framfylgir
þessari stefnuskrá, getur staðist við, að selja lífsábyrgð ódýrara
en önnur félög, sem ekki eru eins .vandlát í þessu tilliti.
Á þessu síðastliðna ári hefir magnast hér í landi deilan
milli hinna íhaldsömu guðfræðinga og þeirra, sem meir eða
minna vikja frá sögulegum kristindómi. En deilan virðist yf-
irleitt vera auðkend af þeirri viðleitni að ræða það, sem á milli
ber af alvöru, en forðast annmarkana, sem svo oft eru á slíkum
deilum. Það er engan vegin æskilegast að sneiða hjá því, að
ræða ágreiningsmál í trúarefnum, en þess þarf að gæta, að um-
ræðurnar verði ekki að ómerkilegum stælum, sem einungis verða
til þess, að ræna menn lotningu fyrir því sem heilagt er.
Oft hefir verið á það minst, hve óheppielgt það er, að eng-
in alþjóðarlöggjöf skuli vera í Bandaríkjunum um hjónaband
og hjónaskilnað. ITvert ríki fyrir sig fer sína leið, svo ekk-
ert samræmi er í löggjöfinni. Samband kvenfélaga í landinu
éGeneral Federation of Women’s Clubs of Americaj, hefir nú
farið að beita sér fyrir málinu, og er vonandi, að þeim verði eitt-
hvað ágengt í því, að koma málinu í rétt horf. Það grunar