Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.11.1922, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.11.1922, Qupperneq 16
336 víst fáa, sem ekki hafa kynt sér máliö, i hvílíkri óreiðu hjóna- bandslöggjöfin er. 1 16 ríkjum er ekkert takmark sett um ald- ur þeirra, er megi giftast. Af því leiðir, aö nú eru í landinu 1,600 fimtán ára drengir, sem þegar eru giftir; en 12,384 fim- tán ára stúlkur. HjónaskilnaSur er mjög tíður, þegar svo stendur á, sem von er til. Löglegar :ástæður fyrir hjónaskiln- aði eru mjög ólíkar í ríkjunum. En það er góðs viti hve mikið athygli málið er farið að vekja, og vonandi að eitthvað ávinnist i rétt horf. En það þarf meira en löggjöf. til að koma réttu lagi á. Það þarf að uppvekja heilbrigt kristilegt almenningsá- -------0-----— A þingi bræðra vorra í United Lutheran Church. * (sameinuðu lútersku kirkjunnar), eftir séra Riinólf Marteinsson. Samkvæmt boði frá því kirkjufélagi, og í umboði forseta kirkjufélags vors, var eg staddur á þessu þingi, en það var hald- ið í Buffalo-borg í New York-ríki dagana 17.—25. okt. Eg náði samt ekki byrjun þingsins, og fór áður en þvi var lokið, en var þar 19.—24. mánaðarins. Þingið var haldið í Holy Trinity kirkju, og er hún hið innra dýrðlega fagurt guðshús, en rammbyggileg eins og klettur hið ytra. Þetta er öflugt kirkjufélag og þetta var stórt þing. Stórt — ekki vegna neinna sérstakra nýmæla, heldur vegna hins víö- ferma starfa, sem það hefir með höndum. Félagið er aðeins fárra ára görnul samsteypa þriggja kirkjufélaga, sem um langt skeið héldu, að þau gætu ekki átt félagslega samleið. Nú hafa þau sameinað krafta sína, og sameinaða félagið er sterkara og með stærri anda en hin öll höfðu áður. Sundrungin á því sviði virðist algjörlega horfin, og nú hafa sameiginlegu starfs- málin gripið hugann, enda var ósleitilega að þeim unnið á þing- inu. Hver jhngdagur var byrjaður með guðsþjónustu, og bænæ gjörð ávalt i fundarlok, en að öðru leyti gekk allur tíminn fyrir og eftir hádegi, að undanteknum kvöldfundunum, í starfs- mál. Allar aðalskýrslur frá embættismönnum og starfsnefnd- um lágu fyrir prentaðar í einu lagi í bókarformi og var það stór

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.