Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1916, Page 4

Sameiningin - 01.08.1916, Page 4
161 pegar vér þá tökum sjálfa trúna til íhugunar ,verður oss fyrst að spyrja: Hvaðertrú? Og svarið verður næsta ólíkt, eftir því úr hvaða átt það kemur. Guðfræðing- urinn svarar því, að trúin sé sannfæring um sannleiksgildi vissra eilífðar hugmynda, sem samkvæmt eðli sínu séu ofar mannlegum skilningi og því órannsakanlegar. Og verða því margir til þess að ætla, að trúin sé einungis samsinni við tilteknar trúar-setningar. Dulspekingurinn segir, að trúin sé meðvitund sálarinnar um Guð í sjálfri sér, sjón og heyrn í heimi andans, samneyti mannssálarinnar við hina eilífu sál. Hagfræðingurinn (pragmatist) svarar, að trúin sé athöfn, sem vilji mannsins framkvæmir af ómótstæðilegri þörf sjálfs sín, og um þá athöfn verði að dæma eftir nytsemi hennar. Svo margskonar eru kenningarnar um það, hvað trúin sjálf í rauninni sé, að margur leiðir hest sinn hjá henni, og lifir sem bezt hann getur, stundum ósjálfrátt und- ir áhrifum hennar, en stundum án alls trúarlegs aðhalds. Og leiðir þessi óvissa svo til þess, að alt í kring eru manns- líf, sem eru ófullkomin, ófríð og ónýt. Fyrst af öllu ættum vér að viðurkenna það, að trúin er ekki neitt auka-atriði í lífi mannsins. Miklu fremur er trúin blómstrið á öllum sálar-eiginleikum mannsíns. Trú í víðtækastri merkingu, er meðfætt sérkenni mannsins og án hennar er hann naumast maður. Um eðli trúarinnar verður maður að viðurkenna, að hún er alt í senn: skyn- semis-athöfn, vilja-aðstaða og tilfinninga-ástand. Og samt er trúin enn þá meira grundvallar-atriði í eðli mannsins, heldur en jafnvel þessir þrír eðlisþættir mannssálarinnar sjálfir. pað mætti jafnvel segja, að hún væri einskonar eðlishvöt, að sínu leyti eins og sjálfsverndar-hvöt manns- ins, og samt er hún ekki eðlishvöt eingöngu, því hún lætur stjórnast einnig af viti og vilja. Barnið hefir trú á foreldrum sínum, lærisveinninn á kennara sínum, sjúklingurinn á lækni sínum, ættjarðarvin- urinn á ættjörð sinni, heimspekingurinn á orsaka-sambandi alheimsins. Og þó er á öllum þessum sviðum margt, sem trúin rekur sig á, mörg mótsögn og þversögn. Samt verð- ur trúin ekki frá manni tekin, því hún á rætur sínar í dýpsta duldjúpi sálar vorrar. Henni er viðhaldið af dular- fullum náttúruöflum, sem enginn fær sigrað. pað er oss einnig óhætt að fastbinda, að trúin er annað og meira en ályktan skynseminnar ein, annað og meira en skoðun m a n n s á þessu eða hinu viðfangsefni skynsem- innar. “Skoðun” er afleiðing þeirrar athafnar skynsem- innar, að hún sannfærir manninn um að eitthvað sé satt, annað hvort vegna trúverðugra heimilda eða eigin rann- sóknar, ellegar af því að engin gild ástæða virðist til þess

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.