Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1916, Page 11

Sameiningin - 01.08.1916, Page 11
171 að “hjá honum sé hvorki umbreyting né umbreytingar skuggi”; og um náttúruna, um alheims-heildina—sem hver maður getur óhindraður kallað vél, ef honum svo sýnist—, að hún gangi eftir hinum allra föstustu reglum. Og nú set eg aftur fyrir yður gömlu spurninguna: Hverjar helzt eru þær svo, þessar fast-skorðuðu reglur, sem fylla lögbók náttúrunnar? pær standa svartar á hvítu í vísindabókum vorum, segið þér; í heimilda-safni mannlegrar reynslu. — Var þá maðurinn með sína reynslu á vettvangi, þegar veröldin var sköpuð, að hann sæi, hvernig alt gekk þar til? Hafa nokkrir hinir djúphygnustu vísindaþulir enn þá kafað niður að afgrunni alheimsins, og tekið þar mál á öllu? Gerði skaparinn þá að ráðunautum sínum, að þeir hafi séð hjá honum smíðisuppdrátt hins óskiljanlega alheims og geti sagt: petta stendur þar markað og ekki meira ? Eng- anveginn, því miður. pessir vísindaþulir hafa hvergi ver- ið, nema þar sem vér erum líka, þeir hafa séð fáeinum þver- höndum lengra en vér ofan í fimbuldjúpið, sem engan hefir botn og engar strendur. — Já, lagakerfi náttúrunnar! Djúp hennar er og verður alveg ómælanlegt, og víðáttan eins, jafnvel fyrir augum hins mesta vitrings með öllu hans víðsýni og alt, sem mannleg reynsla hefir um hana lært, nær yfir fáeinar útreiknaðar aldir og útmældar fermílur. Vér vitum lítið um straumaskifti náttúrunnar á þessu litla reikistjörnu- broti voru, en hver veit, hverskonar undirstraumar valda þeim tilbreytingum; eða hve geysi-víð er sú hringrás or- saka, sem vor litla náttúru-hringrás er undir komin? Brandan er ef til vill nákunnug hverri gjótu, hverjum smá- steini í heimalæknum sínum, og þekkir allar einkunnir hans og svipbrigði; en mun lækjarbrandan bera skyn á sjávarföll og hafstrauma, á stöðuvindana í suðurhöfum, eða á myrkva tunglsins? Alt þetta stillir þó til um lífs- kjörin þar í læknum hennar—og hefir líka til að gjörbreyta þeim á stundum og umhverfa, þótt ekkert sé þar krafta- verkið á ferðum. Slík branda er maðurinn; lækurinn hans er þessi reikistjarna, sem vér köllum jörð; úthafið er al- heimurinn ómælanlegi; staðvindar og hafstraumar eru huldir vegir forsjónarinnar, sem öllu ræður um eilífar tíðir. Vér tölum um bók náttúrunnar, og bók er hún í sann- leika—samin og rituð af sjálfum Guði. En að lesa hana! pekkir þú, þekkir nokkur maður, svo mikið sem stafrófið þar? Að vér ekki spyrjum þig út úr orðum hennar og málsgreinum, og heilum opnum stórfelds lýsingamáls, skáldskapar og speki, sem breiða sig út yfir sólkerfa-raðir og áraþúsundir. Bók sú er rituð himneskum helgirúnum,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.