Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1916, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.08.1916, Blaðsíða 13
173 ur undrun vora eins og til annars, eru þeir tveir geigvæn- legu, sjónvillandi frumhjúpir tilverunnar, tími og r ú m. Til þeirra var spunnið og þeir ofnir fyrir oss áður en vér fæddumst, til þess að klæða vort himinborna “e g” í dvöl- inni hér og þó til að blinda það—og þeir breiða sig yfir alt, þessir hjúpir, eins og málaradúkur eða myndavefur, sem allar hinar smærri tálmyndir þessa draumsjóna-lífs eru ofnar í eða málaðar á. ófyrirsynju, meðan þú dvelur hér á jörð, reynir þú að svifta þeim af. pú getur að eins, þeg- ar bezt lætur, rofið þar glufu á einu augnabliki til að gægj- ast í gegn um. Að hugsunarmótin þessi tvö, rúm og tími, sem vér höfum nú einu sinni verið sendir til jarðar niður að lifa í— að þau bindi skilyrðum sínum alt vort verkvit, öll þar að lútandi hugtök vor, hugmyndir og ímyndanir og ráði þar mestu um, virðist í alla staði vel til fallið, réttlátt og óhjá- kvæmilegt. En að þau skyldi einnig taka sér samskonar vald yfir andlegri hugsun ómengaðri, og blinda oss fyrir þeim dásemdum, sem á allar hliðar umkringja oss—það virðist annað mál. Skipaðu rúmi og tíma í sinn réttmæta sess, sem hugsunarmótum, eða jafnvel, ef þú vilt, í órétt- mætt öndvegi raunar og veru, og hugsaðu þér svo, hvernig hin þunnu dulargervi þeirra hylja fyrir oss margan dýrðar- geisla guðdómsins. Til dæmis, væri það ekki dásamlegt tákn, gæti eg rétt út hönd mína og gripið sólina ? pó sérðu mig dag hvern rétta út þessa sömu hönd og grípa með henni margan hlut og sveifla fram og aftur. Ertu þá full- orðinn hvítvoðungur, sem heldur að kraftaverkið liggi í mílufjöldanum eða pundatölunni; sem ekki sérð að hið sanna, óskiljanlega, guð-birtandi kraftaverk liggur frem- ur í hinu, að eg skuli nokkuð geta rétt út höndina, að eg skuli eiga sjálfrátt afl til að grípa með henni nokkurn hlut? Óteljandi aðrar þessu líkar eru blekkingarnar, sem rúmið deyfir með undrun vora. En ver er þó tímanum farið í þessu. Hann er sá mikli töfrafjandi og undra-hyljandinn allsherjar, þessi lyga- Mörður, tíminn. Ættum vér tíma-eyðingar-hjálm, og gæt- um í eitt skifti brugðið honum upp, þá sæum vér sjálfa oss í undra-heimi, sem yfir öllum táknum og undrum og töfra- afrekum bæri hærra hlut, sönnum eða lognum. En því miður höfum vér ekki slíkan hjálm; og maðurinn, aumur einfeldningur, bjargar sér án hans bæði seint og illa í þeim sökum. Væri það ekki dásamlegt, til dæmis, hefði Orfeus eða Amfíón reist pebuborgarveggi með einberu hljóði hörpu sinnar? En seg mér, hver reisti þessa veggi hér í heima- þorpinu mínu, hver kvaddi út sandsteins-hnullungana, svo

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.